Frístund skólaárið 2025-2026

Fréttir

Frístund er starfrækt í Hrafnagilsskóla. Þar býðst nemendum í 1. – 4. bekk að dvelja eftir skóla frá kl. 14:00 til kl. 16:00. Það skal tekið fram að sækja þarf börnin í síðast lagi kl. 16:00 en þá er lokað í frístund.

Foreldrar og forráðamenn geta valið um þrenns konar dvalartíma.
Þeir eru;

  • allir dagar milli kl. 14:00 og 16:00.
  • þrír ákveðnir dagar í viku milli kl. 14:00 og 16:00.
  • tveir ákveðnir dagar í viku milli kl. 14:00 og 16:00.

Verð í frístund eru eftirfarandi:

 

Frístundargjald

Síðdegishressing

Samtals

Full frístund

13.883

3.220

17.103

Frístund í 3 daga í viku

8.330

1.932

10.262

Frístund í 2 daga í viku

5.553

1.288

6.841

 

Boðið er upp á síðdegishressingu í frístund.

Tímagjald er 319 kr. á klukkustund og síðdegishressing kostar 167 krónur. Hækkun frá síðasta skólaári er 4,0%.

Ekki er dregið frá mánaðargjaldi þótt barn sé veikt eða í leyfi einhverja daga. Foreldrar og forráðamenn geta þó sótt sérstaklega um niðurfellingu gjalda ef veikindi vara lengur en 2 vikur samfellt. Greiðsluseðlar eru sendir út mánaðarlega.

Systkinaafsláttur er samtengdur milli leikskóla og frístundar. Til að njóta afsláttar þurfa börnin að vera skráð á kennitölu sama forráðamanns (greiðanda) og með sama lögheimili.

Starfsmenn frístundar eru: Arnór Gauti Kristinsson, Bjarkey Birta Gissurardóttir, Marta Þórudóttir og Thelma Rán Brynjarsdóttir.

Eins og áður er það í boði að starfsfólk frístundar aðstoði börn við að mæta á íþróttaæfingar hjá U.m.f. Samherjum óski foreldrar og forráðamenn þess.

Afar mikilvægt er að tilkynna tímanlega til ritara tilfallandi breytingar á dvalartíma t.d. ef barn á að koma heim strax að skóla loknum eða er að fara í heimsókn til annars barns.

Hægt er að breyta mánaðarlegri skráningu með því að senda tölvupóst á nanna@krummi.is fyrir 25. næsta mánuð á undan og tilgreina dvalartíma barnsins. Sé ekki haft samband er litið svo á að um óbreyttan tíma verði að ræða.

Hægt er að hafa samband við starfsmenn í síma 464-8103 og 868-8103 eftir klukkan 14:00 og einnig er hægt að senda póst á nanna@krummi.is.

Frístund 2025-2026

  1. ágúst – skólasetning, frístund lokuð.
    2. sept. – útivistardagur, frístund opin.
    29. sept. – foreldraviðtalsdagur, frístund opin frá kl. 8:00-16:00 *
    16. og 17. okt. – starfsdagar, frístund lokuð.
    20. og 21. okt. – vetrarfrí, frístund lokuð.
    14. nóv. – dagur íslenskrar tungu – frístund opin.
    19. des. – litlu jólin, frístund lokuð.
    20. des.- 1. jan., jólaleyfi, frístund lokuð.
    2. jan. – starfsdagur, frístund lokuð.
    2. febr. - starfsdagur, frístund lokuð.
  2. og 4. febr. – foreldraviðtalsdagar, frístund opin frá kl. 8:00-16:00 *
    18. febr. – öskudagur, frístund lokuð.
    19. - 20. febr. – vetrarfrí, frístund lokuð.
    3. mars – útivistardagur, frístund opin.
    28. mars.– 6. apríl – páskaleyfi, frístund lokuð.
    4. júní – síðasti skóladagur nemenda, frístund opin.

*Skrá þarf börn hjá starfsmönnum frístundar eða ritara þá daga sem eru stjörnumerktir og greitt er sérstaklega fyrir þá.