Fundarboð 647. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

FUNDARBOÐ

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar - 647. fundur verður haldinn í fundarstofu 1, Skólatröð 9, fimmtudaginn 13. febrúar 2025 og hefst kl. 08:00.


Dagskrá:

Almenn erindi

1. Athafnasvæði á Bakkaflöt - deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi - 2310005
Fyrir fundinum liggja tillaga á vinnslustigi vegna nýs deiliskipulags og breytingar á aðalskipulagi fyrir athafnasvæði á Bakkaflöt.
Skipulagsnefnd afgreiddi málið frá sér á 425. fundi sínum. Þar óskar nefndin eftir við skipulagshönnuð að uppfæra gögn svo að mænishæð verði að hámarki 10m. Skipulagsnefnd lagði þá til við sveitarstjórn að svo breyttri aðal- og deiliskipulagstillögu vegna Bakkaflatar - athafnasvæðis yrði vísað í kynningu skv. 2. mgr. 30 gr. og 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Aðalskipulagstillagan er unnin af Landslagi dags. 7. febrúar 2025.
Deiliskipulagstillagan er unnin af Lilium teiknistofu, dags. 10. febrúar 2025 og hefur þar verið tekið tillit til ábendingar skipulagsnefndar um að hámarks mænishæð verði 10 metrar.

2. Sorphirða og gámasvæði gjaldskrá 2025 - 2412001
Sveitarstjórn tekur fyrir gjaldskrársamþykkt fyrir förgun úrgangs og sorphirðu í sveitarfélaginu.

3. Skipan í nefndir og ráð 2022 til 2026 - 2205018

4. Sýslum. á Norðurl.eystra óskar eftir umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II vegna Kotru 13 - 2502007
Sveitarstjóri kynnir umsögn Eyjafjarðarsveitar vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II vegna Kotru 13. Í umsögninni kemur fram að "Litið er svo á að útgáfa nýrra gistileyfa sé ekki í samræmi við gildandi skipulag í Kotru og mælir Eyjafjarðarsveit því gegn útgáfu umbeðins leyfis að Kotru 13".


Fundargerðir til kynningar

5. Framkvæmdaráð - 157 - 2501006F
Fundargerð 157.fundar Framkvæmdaráðs Eyjafjarðarsgveitar lögð fram til kynningar

6. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 425 - 2502001F
Fundargerð 425.fundar Skipulagsnefndar Eyjafjarðarsgveitar lögð fram til kynningar.

7. Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 277 - 2501002F
Fundargerð 277.fundar Skólanefndar Eyjafjarðarsgveitar lögð fram til kynningar.

8. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 960 - 2501002
Fundargerð 960. fundar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

9. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 961 - 2502004
Fundargerð 961. fundar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

10. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 962 - 2502005
Fundargerð 962. fundar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

 

11.02.2025

Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.