FUNDARBOÐ
649. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, miðvikudaginn 26. febrúar 2025 og hefst kl. 08:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 (breyting) Holtahverfi - ÍB17 og VÞ17, nr. 0821-2024 Kynning tillögu á vinnslustigi - umsagnarbeiðni - 2502023
Akureyrarbær hefur óskað eftir umsögn við aðalskipulagsbreytingu: Holtahverfi - ÍB17 og VÞ17: kynning tillögu á vinnslustigi (breyting á aðalskipulagi), mál nr. 0821/2024 í skipulagsgátt.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi 426. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við erindið.
2. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - 2210043
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi 426. Skipulagsnefnd óskar eftir sameiginlegnum fundi með sveitarstjórn þar sem farið verður yfir áherslur og stefnu ásamt skipulagshönnuði.
3. Húsnæðisáætlun 2025 - 2502043
Fyrir sveitarstjórn liggur húsnæðisáætlun fyrir Eyjafjarðarsveit fyrir árið 2025.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi 426 og leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi drög af húsnæðisáætlun Eyjafjarðarsveitar 2025 verði samþykkt.
4. Oddi (áður Espigerði), Birkitröð, Kvos - Breytingartillaga á deiliskipulagi -
1706026
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi 426 og leggur til við sveitarstjórn að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna deiliskipulagið að nýju samkv. 5.6. og 5.7.gr. skipulagsreglugerðar 90/2013.
5. Brúnahlíð Brúarlandi - leiðrétting á skipulagsmörkum - 2305033
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi 426 og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagstillöguna "Brúnahlíð Brúarlandi - Leifsstaðir Eyjafjarðarsveit" þannig að skipulagsmörk verði leiðrétt samkvæmt ábendingu frá Skipulagsstofnun og að deiliskipulagið "Brúarland Eyjafjarðarsveit, Brúnagerði áfangi A og B (05)" geti öðlast gildi. Jafnframt verði skipulags- og byggingarfulltrúa falið að fullnusta skipulagið með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
6. Öngulstaðir 5 - L225123 - Umsókn um stofnun sjálfstæðrar eignar úr kjallaraíbúð
hússins. - 2502030
Fyrir fundinum liggur erindi frá eigendum Öngulsstaða 5 L225123 F2160058, sem sækja um leyfi til að gera íbúð í kjallara eignarinnar að sjálfstæðri fasteign/séreign.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi 426 og leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði vísað í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega
að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið teljist samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
7. Borholur í nágrenni Stokkahlaða - Umsókn um framkvæmdarleyfi - Norðurorka -
2502018
Norðurorka sækir um framkvæmdaleyfi til borunar á borholum í nágrenni Stokkahlaða. Umsókninni fylgir áætluð staðsetning ásamt umsögn/leyfi landeiganda.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi 426 og leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi enda liggja samþykki landeigenda fyrir.
8. Víðigerði II - L152822 - Umsókn um byggingarreit fyrir 180m2 - 2502031
Fyrir fundinum liggur umsókn um byggingarreit undir allt að 180m2 geymslu í landi Víðigerðis II L152822.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi 426 og leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði vísað í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega
að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið teljist samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
9. Leifsstaðir land (Leifsstaðabrúnir 25 eða Heiðarhvammur) L152708 - óveruleg
breyting á deiliskipulagi og sameining 4 lóða - 2502011
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem óskað eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að sameina fjórar lóðir sem eru í eigu sama aðila, breytingu á nýtingarhlutfalli, mænisstefnu og þakformi.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi 426 og leggur til við sveitarstjórn að samþykkt verði að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi Leifsstaðabrúna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem tekur til lóðar nr. 25, og að breytingartillögu verði vísað í grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga. Heimilt verði að stytta tímabil grenndarkynningar ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir að ekki sé gerð athugasemd við tillöguna og að erindið teljist samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabili.
10. Brúarland (ÍB 15) og Brúarland efra svæði (L) (SL), breytingar á skilgreiningu í ASK - 2501006
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi 426 og leggur til við sveitarstjórn að skipulagslýsingin verði lögð fram til kynningar skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11. Samningur um Barnaverndarþjónustu á Norðurlandi eystra - 2412006
Lagt fram til kynningar.
12. Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisauka-, umhverfis- og auðlindaskatt og tollalögum - 2502042
Áformað er að leggja fram frumvarp þar sem m.a. verða lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 vegna breytinga á tollskrá og lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009 af sömu ástæðu. Í frumvarpinu verður einnig lagt til að auka við heimildir tollyfirvalda til að leita í farangri farþega að honum fjarstöddum og skýra nánar ákvæði í tollalögum um tilkynningarskyldu og viðurlög vegna flutnings á reiðufé á milli landa. Tilefnið eru kröfur og tilmæli FATF, alþjóðlegs fjármálaaðgerðarhóps ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Jafnframt er lagt til að felld verði úr gildi ákvæði í tollalögum er varða verðjöfnunargjald samkvæmt búvörulögum nr. 99/1993, enda er ekki kveðið lengur á um slíkt gjald í búvörulögum. Að lokum er með frumvarpinu fyrirhugað að gera breytingar á inntaki c-liðar 5. athugasemdar við 4. kafla tollskrárinnar, sem er viðauki við tollalög, nr. 88/2005. Um er að ræða innleiðingu á túlkun Alþjóðatollstofnuninni (WCO) á samhljóða athugasemd í tollanafnaskrá stofnunarinnar.
13. Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga - 2502038
Í janúar 2023 skipaði innviðaráðherra starfshóp um endurskoðun á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og var markmið starfshópsins að bæta gæði jöfnunar, einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins og tryggja að sjóðurinn fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar.
Frumvarp þetta var samið á grundvelli tillagna starfshópsins, sem m.a. fólu í sér að nýtt líkan Jöfnunarsjóðs sem leysir núverandi tekjujöfnunar-, útgjaldajöfnunar- og fasteignaskattsframlög af hólmi. Um er að ræða gagnsætt líkan sem sameinar ofangreind framlög í eitt framlag.
Fundargerðir til kynningar
14. Tónlistarskóli Eyjafjarðar - Fundargerð 148. fundar skólanefndar - 2502035
Fundargerð 148. fundar skólanefndar Tónlistarskóla Eyjafjarðar lögð fram til kynningar.
15. HNE - Fundargerð 240 - 2502032
Fundargerð 240. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra lögð fram til kynningar.
16. Norðurorka - Fundargerð 306. fundar - 2502022
Fundargerð 306. fundar stjórnar Norðurorku lögð fram til kynningar.
17. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 963 - 2502019
Fundargerð 963. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
18. SSNE - Fundargerð 70. stjórnarfundar - 2502041
Fundargerð 70. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra lögð fram til kynningar.
19. Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar - 9 - 2502002F
20. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 426 - 2502005F
24.02.2025
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.