Fundarboð 657. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

FUNDARBOÐ
657. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 5. júní 2025 og hefst kl. 08:00.


Dagskrá:

Almenn erindi

1. Leifsstaðir land L152708 - Beiðni um breytt staðfang - 2505026
Eigendur Leifsstaða land L152708 óska eftir að staðfangi verið breytt í Leifstaðabrúnir 25.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 433. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að samþykkja erindið og fela skipulagsfulltrúa að fullnusta breytinguna.

2. Hólmatröð 3 - beiðni um breytt deiliskipulag, aukið byggingarmagn - 2505033
Byggingarfulltrúi hefur óskað umsagnar vegna byggingaáforma þar sem byggingarmagn á lóðinni er aukið miðað við gildandi deiliskipulag.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 433. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins skuli fallið frá grenndarkynningu sbr. 3.mgr 44.gr sömu skipulagslaga.

3. Endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 - Kynning tillögu á vinnslustigi - 2505032
Svalbarðsstrandarhreppur hefur óskað eftir umsögn Eyjafjarðarsveitar við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt: Endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020, nr. 0123/2024: Kynning tillögu á vinnslustigi (Nýtt aðalskipulag).
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 433. fundi sínum og gerði ekki athugasemd við endurskoðunina.

4. Brúarland (ÍB 15) - breytingar á skilgreiningu í ASK og greinargerð DSK - 2501006
Tekið fyrir að nýju erindi vegna breytingar á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018 - 2030 vegna skilgreiningar verslunar- og þjónustusvæðis að Brúarlandi við Leifsstaðabrúnir. Fyrir liggur vinnslutillaga að breytingu á aðalskipulagi frá Landslagi ehf dags. 23. maí s.l.
Erindið var síðast á dagskrá 655. fundar sveitarstjórnar þann 8.maí 2025 þar sem samþykkt var að fela skipulagshönnuði að leggja fram skipulagstillögu og hafa hliðsjón af innkomnum erindum við gerð hennar. Einnig liggur fyrir sveitarstjórn breyting á greinargerð deiliskipulags svæðisins í samræmi við fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulagi, unnið af Kollgátu dags. 19.05.2025.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 433. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að kynna vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar vegna skilgreiningar verslunar- og þjónustusvæðis að Brúarlandi ásamt breytingu á greinargerð deiliskipulags fyrir íbúum og hagsmunaaðilum skv. 2. mgr. 30. gr og 4. mgr. 40. gr. að undangengnum breytingum sem fram komu á fundinum.

5. Norðurþing - fundarbókun 13.03.2025 Erindi varðandi náttúruvernd í Norðurþingi - 2504007
Byggðaráð Norðurþings samþykkir að leita eftir samstarfi við sveitarfélögin á starfssvæði SSNE um stofnun og rekstur náttúruverndarnefndar. Norðurþing lýsir sig reiðubúið til að vera leiðandi sveitarfélag í starfi nefndarinnar.

6. Hestamannafélagið Funi - Beiðni um auka fjárframlag - 2505025
Bréf frá Hestamannafélaginu Funa til sveitarstjórnar dagssett 27. maí 2025.

7. Umferðaröryggisáætlun 2024 - 2405022
Atvinnu- og umhverfisnefnd hefur unnið drög að uppfærðri umferðaröryggisáætlun 2025. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að uppfærð drög þar sem horft hefur verið til ábendinga og annarra atriða verði samþykkt og umferðaröryggisáætlun Eyjafjarðarsveitar 2025 gefin út.

8. Nýsköpunarstefna Eyjafjarðarsveitar - 2209031
Atvinnu- og umhverfisnefnd hefur unnið drög að Nýsköpunarstefnu fyrir Eyjafjarðarsveit.
Leggur nefndin til við sveitarstjórn að fram lögð Nýsköpunarstefna verði samþykkt og að hafist verði handa við að innleiða hana í stjórnsýsluna. Þá verði tekið tillit til stefnunnar við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

9. Styrkbeiðni Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar - 2505020
Ferðamálafélag Eyjafjarðarsveitar leitaði til Atvinnu- og umhverfisnefndar eftir stuðning þess efnis að sveitarfélagið tæki þátt í ferðamálaráðstefnunni Vestnorden 2025 á Akureyri.
Nefndin samþykkti á 16. fundi sínum að ráðstafa fjármagni af fjárhagsramma sínum til að standa straum af kostnaði við þátttöku á ráðstefnunni. Leggur nefndin til við sveitarstjórn að sveitarstjóra verði falið að sækja ráðstefnuna fyrir hönd sveitarfélagsins.

10. SSNE - Ósk um samstarf sveitarfélaga vegna RECET verkefnisins - 2409008
Fyrir fundinum liggur samantekt yfir þær aðgerðir sem þátttakendur drógu fram á vinnustofu RECET sem mikilvægar fyrir Eyjafjarðarsveit að hrinda í framkvæmd og fundargerð með öllum hugmyndum og umræðum sem komu fram á vinnustofunum.
Atvinnu- og umhverfisnefnd tók erindið fyrir á 16. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að bendingum varðandi aðgerðir í orkuskiptum sé vísað til afgreiðslu framkvæmdaráðs og horft verði til þess við gerð næstu fjárhagsáætlunar.


Fundargerðir til kynningar

11. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 979 - 2505018
Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

12. Norðurorka - Fundargerð 310. fundar - 2505022
Fundargerð 310. fundar stjórnar Norðurorku lögð fram til kynningar.

13. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 432 - 2505003F
Fundargerð 432. fundar skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.

14. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 433 - 2505005F
Fundargerð 433. fundar skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.

15. Fjallskilanefnd Eyjafjarðarsveitar - 49 - 2505007F
Fundargerð 49. fundar fjallskilanefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.

16. Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 279 - 2505006F
Fundargerð 279. fundar skólanefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.

17. Framkvæmdaráð - 158 - 2502007F
Fundargerð 158. fundar framkvæmdaráðs Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.

18. Atvinnu- og umhverfisnefnd - 16 - 2505008F
Fundargerð 16. fundar atvinnu- og umhverfisnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.

02.06.2025
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.