Fundarboð 660. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

FUNDARBOÐ
660. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 28. ágúst 2025 og hefst kl. 08:00.


Dagskrá:

Almenn erindi

1. Skipan í nefndir og ráð 2022 til 2026 - E2205018
Kjartan Sigurðsson hefur af persónulegum ástæðum óskað lausnar frá sveitarstjórnarstörfum en hann hefur setið sem aðalfulltrúi í sveitarstjórn og formaður í atvinnu- og umherfisnefnd.

2. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Varðgjárlón hækkun vatnsyfirborðs - E2506054
N10b sækir um framkvæmdaleyfi í tilgangi að koma fyrir þrepi í ræsi við Þjóðveg 1 úr lóni sem myndaðist þegar Eyjafjarðarbraut eystri var lögð. Vatnsstaða lónsins ræðst í dag af sjávarstöðu en sjórinn hefur borið inn með sér jarðefni (fíngerðan leir og drullu). Um er að ræða 15cm hækkun á vatnsyfirborði í lóninu á fjöru sem kallað hefur verið Varðgjárljón og fer því uppsafnað jarðefni á kaf eftir framkvæmdina sem hefur engin áhrif á vatnsyfirboð lónsins í flóði.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 434. fundi sínum þar sem nefndin frestaði erindinu og óskaði umsagnar Umhverfisstofnunar. Þá tók nefndin erindið aftur fyrir á 436. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni.
Skipulagsnefnd leit svo á að hagsmunir af framkvæmdinni vegi þyngra en möguleg áhrif hennar. Feli framkævmdin meðal annars í sér það markmið að vernda andarunga fyrir ágangi máva sem tína andarungana upp þegar vatnsstaða tjarnarinnar er lægri og þornar að hluta til upp á fjöru. Þá liggi ekki fyrir vísbendingar um að hækkun vatnsyfirborðsins hafi áhrif á nærsvæði tjarnarinnar sem ekki muni stækka að ummáli. Þá taldi skipulagsnefnd að umfang framkvæmdarinnar sé takmarkað og áhrifin afturkræf ef til framtíðar verður ákveðið að fjarlægja þröskuldinn.

3. Umsagnarbeiðni v. Orlofshús og hótel á Leifsstöðum - Kynning matsáætlunar - E2508002
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn Eyjafjarðarsveitar við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt: Orlofshús og hótel á Leifsstöðum, nr. 1033/2025: Kynning matsáætlunar (Mat á umhverfisáhrifum).
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 436. fundi sínum og telur að greinagerðin sé fullnægjandi hvað varðar umhverfisáhrif og því ekki þörf á frekara umhverfismati framkvæmda en tekur fram að framkvæmdin sé háð framkvæmdaleyfi og byggingarleyfi hjá Eyjafjarðarsveit.

4. Umhverfis- og orkustofnun - Umsókn um rannsóknarleyfi á vatnasviði Eyjafjarðarár - E2507006
Arctic Hydro ehf. Sækir um leyfi til rannsókna á afmörkuðum hluta vatnasviðs Eyjafjarðarár innarlega í Eyjafjarðardal í Eyjafjarðarsveit í Eyjafirði, með tilliti til fýsileika og hagkvæmni rennslisvirkjunar í Eyjafjarðará.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 436. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki sé gerð athugasemd við að Arctic Hydro ehf. fái leyfi til rannsóknar á umræddu svæði.

5. Vegagerðin - Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Akursvegar 2 nr. 8403-01 og Brúarlandsvegar nr. 8485-01 af vegaskrá - E2508008
Fyrir fundinum liggur tilkynning frá vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Akursvegar 2 nr. 8403-01 og Brúarlandsvegar nr. 8485-01 af vegaskrá.
Skipulagsnefnd tók erindið til umfjöllunar á 436. fundi sínum og benti á að lögheimil sé að Akri og því ekki eðlilegt að taka veg nr. 8403-01 af Vegaskrá.

6. Umsagnarbeiðni, Vaðlaborgir B - Íbúðarsvæði deiliskipulag - Lýsing - E2508010
Svalbarðsstrandarhreppur hefur óskað eftir umsögn Eyjafjarðarsveitar við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt: Svalbarðsstrandarhreppur, Vaðlaborgir B - Íbúðarsvæði deiliskipulag, nr. 1123/2025: Lýsing (Nýtt deiliskipulag) Kynningartími er frá 13.8.2025 til 10.9.2025.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 436. fundi sínum og bendir á að mikilvægt sé að samskipti séu milli landeigenda og skipulagshönnuða varðandi mögulegar vegtengingar á milli skipulagssvæða til norðurs og suðurs bæði varðandi aksturs- og gönguleiðir utan Veigastaðavegar. Að öðru leiti leggur skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við lýsingu á nýju deiliskipulagi íbúðarsvæðis í Vaðlaborgum B sem tekur mið af rammahluta aðalskipulags sveitarfélaganna um uppbyggingu byggðar í Vaðlaheiði.

7. Oddi (áður Espigerði), Birkitröð, Kvos - Breytingartillaga á deiliskipulagi - E1706026
Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi Odda (áður Espigerði), Birkitröð, Kvos. Tillagan var áður auglýst með athugasemdafresti frá 8. febrúar 2021 til 1. apríl 2021 en sökum þess að ár leið frá því að tillagan var auglýst áður en auglýsing um gildistöku var birt í B deild Stjórnartíðinda, þurfti að auglýsa tillöguna að nýju. Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á þann 26. febrúar 2025 að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í Leifsstaðabrúnum, Oddi (áður Espigerði), Birkitröð, Kvos.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 436. fundi sínum þar sem hún fór yfir innkomnar athugasemdir sem bárust við endurauglýsingu tillögunnar. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að breytingar verði gerðar á tillögunni í samræmi við umræður á fundinum og að skipulagsfulltrúa verði falið að sjá um gildistöku tillögunnar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

8. Stefnumál sveitarstjórnar 2022-2026 - E2501024
Sveitarstjórn fer yfir stöðu stefnumála listanna fyrir kjörtímabilið 2022-2026.

9. Fasteignir Eyjafjarðarsveitar - E2502037
Sveitarstjórn fer yfir fasteignir sveitarfélagsins út frá áherslum fjárhagsáætlunar.

10. Fjárhagur sveitarfélagsins - E2504033
Sveitarstjórn ræðir fjármögnunarkosti vegna framkvæmda og almenna stöðu fjárhags og
framkvæmda.


Fundargerðir til kynningar

11. Fjallskilanefnd Eyjafjarðarsveitar - 50 - 2508004F
Fundargerð 50. fundar Fjallskilanefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.

12. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 436 - 2508007F
Fundargerð 436. fundar Skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.


25.08.2025
Finnur Yngvi Kristinsson, Sveitarstjóri.