FUNDARBOÐ
662. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 25. september 2025 og hefst kl. 08:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Héraðsreiðleið RH7 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - E2508019
Fyrir fundi liggur ósk Reiðveganefndar hestamannafélagsins Funa eftir framkvæmdaleyfi fyrir reiðleið um Brúnir.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 436., 437. og 438. fundi sínum þar sem orðið hafði verið við ósk landeiganda að Brúnum að kanna hliðrun á legu reiðleiðarinnar yfir á aðliggjandi landareign að hluta. Ekki fékst heimild aðliggjandi landeiganda til þess og telur skipulagsnefnd því fullreynt að fara aðrar leiðir. Leggur skipulagsnefnd því til við sveitarstjórn að umsókn Reiðveganefndar hestamannafélagsins Funa um framkvæmdaleyfi fyrir héraðsreiðleið RH7 um land Brúna verði samþykkt samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og kvöð á jörðinni. Vestast liggi reiðleiðin út fyrir land Brúna inn á land í eigu kirkjunnar.
2. Öngulsstaðir 4 - E2012011
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni f.h landeigenda Öngulsstaða IV og Öngulsstaða 2. Merkjalýsingin varðar stækkun á lóðinni Öngulsstaðir IV L194461.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 438. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
3. Festarklettur landamerki, Knarrarberg og Arnarholt lóðir - Merkjalýsing - E2509016
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Guðmundi H. Gunnarssyni fyrir Festarklett, Knarrarberg og Arnarholt L152674.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 438. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
4. Kaupangur L152673 afmörkun lóðar - Merkjalýsing - E2509017
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni sem varðar Kaupang L152673.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 438. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
5. Hvammur 3 - Stofnun lóðar úr landi Hvamms L152657 - E2509018
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af VERKÍS. Tilurð merkjalýsingarinnar er stofnun nýrrar lóðar úr upprunalandinu Hvammur L152657 utan um útihús sem þar standa. Sótt er um að lóðin fái nafnið Hvammur 3.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 438. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu, sem varðar stofnun nýrrar lóðar úr upprunalandi Hvamms (L152657). Lóðin hljóti nafnið Hvammur 3. Samþykktin er gerð á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
6. Bogalda og Miðalda - Stofnun 33 lóða og merkjalýsing - E2509019
Fyrir fundinum liggur umsókn um stofnun 33 lóða ásamt merkjalýsingu þeirra í landi Ölduhverfis L228843 og Kropps L152699. Merkjalýsingin er unnin af VERKÍS.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 438. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
7. Þórustaðir 7 L190539 og Þórustaðir 2 land L190538 - Merkjalýsing - E2509021
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni, þar sem lóðarmörk Þórustaða 7 og 2 eru afmörkuð og stækkuð. Helgi Örlygsson sendir inn erindið.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 438. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
8. Breiðablik L178246 - Merkjalýsing - E2509025
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing fyrir Breiðablik L178246. Merkjalýsingin er unnin af Jóni Hlyn Sigurðssyni.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 438. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
9. Melgerðismelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð - E2411037
Tekin fyrir að nýju skipulagslýsing Melgerðismela. Erindið var síðast á dagskrá skipulagsnefndar 23. júní s.l. þar sem samþykkt var að skipulagslýsing yrði kynnt skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin var kynnt til og með 13. ágúst - 10. september 2025. Sjö athugasemdir bárust við lýsinguna sem nýttar verða við mótun deiliskipulagstillögu.
10. Sölvastaðir Svínabú - ósk um heimild til vinnslu á breytingu DSK - E2509030
Fyrir fundinum liggur erindi frá Sölvastöðum ehf. þar sem óskað er eftir heimild til þess að vinna breytingu á deiliskipulagi. Ómar Ívarsson hjá Landslagi ehf. vann og sendir inn erindið f.h. eigenda.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 438. fundi sínum og lagði til að umsækjanda verði heimilað að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi svínabús í landi Sölvastaða í Eyjafjarðarsveit. Breytingin feli í sér að auka heimilt byggingarmagn um allt að 1.800 fermetra vegna vélageymslu, lagers og fráfæruklefa í eldisgrísahúsi. Ekki er gert ráð fyrir að skipulagsbreytingin muni hafa í för með sér aukinn fjölda grísa (30 kg->), sem ennþá verður 2.400.
11. Náttúruhamfaratrygging Íslands - Erindi er varðar 16. gr. laga nr. 55 árið 1992 - E2509022
Lagt er fram til kynningar erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands þar undirstrikað er fyrir sveitarfélögum "að skipulag byggðar og leyfisveitingar á þekktum hættusvæðum séu á ábyrgð viðkomandi skipulagsyfirvalda og þeirra aðila sem velja að byggja og reka mannvirki á slíkum stöðum. Kaupendur húseigna geta ekki gengið út frá því sem vísu að tjónabætur verði greiddar þegar þeir kaupa eignir sem byggðar eru á svæðum þar sem hættan er fyrir fram þekkt eða endurtekin. Ábyrgð skipulagsyfirvalda er því mikil og hefur stjórn NTÍ falið undirritaðri að vekja sérstaka athygli sveitarfélaga á henni".
12. SSNE - Þátttaka í Farsældarráði Norðurlands eystra - E2509024
Stefnt er að stofnun farsældarráðs í október eða nóvember þar sem sveitarfélögin skrifa undir samstarfssamninginn og aðrir þjónustuaðilar skrifa undir viljayfirlýsingu á þátttöku í ráðinu. Fyrir sveitarstjórn liggja skjöl frá SSNE til umfjöllunar og samþykktar sem hluti af stofnun svæðisbundins farsældarráðs Norðurlands eystra, í samræmi við 5. gr. laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Jafnframt er óskað eftir því að sveitarfélagið tilnefni einn aðalmann og einn varamann í ráðið, sbr. 2. gr. samstarfssamnings og starfsreglur ráðsins. Æskilegt er að fulltrúar séu stjórnendur sem eru með góða tengingu við stjórnsýslu og nefndir sveitarfélagsins ásamt því að þeir komi frá sviði velferðar- og/eða fræðslumála, enda gegnir ráðið lykilhlutverki í stefnumótun, samhæfingu og forgangsröðun aðgerða um farsæld barna í landshlutanum.
13. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2026 og 2027-2029 - E2509026
Lagðar fram forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2026 og 2027-2029 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga auk minnisblaðs skrifstofu- og fjármálastjóra vegna fasteignagjalda.
Fundargerðir til kynningar
14. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 438 - 2509007F
Fundargerð 438. fundar skipulagsnefndar Eyafjarðarsveitar lög fram til kynningar.
15. SSNE - Fundargerð 75. stjórnarfundar - E2509028
Fundargerð 75. fundar stjórnar SSNE lögð fram til kynningar.
16. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 984 - E2509031
Fundargerð 984. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
17. Tónlistarskóli Eyjafjarðar - Fundargerð 151. fundar skólanefndar - E2509038
Fundargerð 151. fundar skólanefndar Tónlistaskóla Eyjafjarðar lögð fram til kynningar.
18. HNE - Fundargerð 243 - E2509039
Fundargerð 243. fundar HNE lögð fram til kynningar.
22.09.2025
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.