FUNDARBOÐ
670. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 12. febrúar 2026 og hefst kl. 08:00
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Fyrir fundinum liggja gögn vinnslutillögu að endurskoðun Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2025-2037.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 446. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að uppfærðri vinnslutillögu verði vísað í kynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010. Tillagan verði kynnt á opnum íbúafundi og dagsetning fundar auglýst síðar.
2. Austurhlíð L152567 - beiðni um breytta landnotkun - E2601037
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem óskað er eftir að landnotkun jarðarinnar Austurhlíðar (L152567) verði breytt úr athafnarsvæði í verslunar- og þjónustustarfsemi, með heimild fyrir ferðaþjónustu og orlofshús.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 446. fundi sínum og laðgi til við sveitarstjórn að beiðni um breytta landnotkun Austurhlíðar (L152567) verði vísað í endurskoðun aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar.
3. Leifsstaðir II L152714 - breyting á aðal- og deiliskipulagi, hótel orlofshús - E2411007
Fyrir fundinum liggur umsögn Skipulagsstofnunar vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Leifsstaða II fyrir auglýsingu skv. 3.mgr. 30. gr skipulagslaga 123/2010.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 446. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra tillögu að breytingu á aðalskipulagi í samræmi við athugun Skipulagsstofnunar. Að því loknu verði tillagan auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Tekin er fyrir að nýju beiðni um heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag íbúðarsvæðis á Syðri-Varðgjá.
Sveitarstjórn frestaði á 669.fundi sínum afgreiðslu erindisins þar til niðurstaða Veðurstofunnar liggur fyrir varðandi hvort svæðið skilgreinist sem þéttbýli út frá lögum um ofanflóðamat. Niðurstaða Veðurstofunnar liggur nú fyrir og kemur skýrt fram í fundargerð ofanflóðanefndar Eyjafjarðarsveitar að ekki sé um að ræða skilgreint þéttbýli.
5. Skógræktarfélag Eyfirðinga samningur 2026-2027 - E2602004
Tekin eru fyrir drög að samning við Skógræktarfélag Eyfirðinga árin 2026-2027
6. Íbúðir fyrir eldri íbúa - E2503025
Sveitarstjórn tekur til umræðu hugmyndir KEA að samkomulagi um uppbyggingu og leigu íbúða fyrir 60+ í Eyjafjarðarsveit.
7. Mötuneyti - útboð 2026 - E2601016
Velferðar- og menningarnefnd, skólanefnd og ungmennaráð hafa rætt áherslur sínar varðandi útboð mötuneytis og liggja þær fyrir sveitarstjórn.
8. Starfsemi Kristnesspítala - E2511018
Tekið til umræðu minnisblað frá fundi sveitarstjórnar með forsvarsfólki SAK.
9. Bókasafn Eyjafjarðarsveitar - E2504005
Velferðar- og menningarnefnd fékk til fundar við sig forsvarsfólk Amtbókasafnsins, Hrafnagilsskóla og Bókasafns Eyjafjarðarsveitar. Á fundi nefndarinnar komu fram ýmsar ábendingar sem nefndin telur að geti nýst í áframhaldandi stefnumótun varðandi starfsemi bókasafnsins, val á húsgögnum, búnaði og nýtingu rýmisins.
Minnisblað með ítarlegri samantekt frá fundi nefndarinnar liggur fyrir sveitarstjórn.
Fundargerðir til kynningar
10. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 446 - 2602003F
Lögð fram til kynningar 446. fundur Skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar.
11. Framkvæmdaráð - 167 - 2601010F
Lögð fram til kynningar fundargerð 167. fundar framkvæmdaráðs Eyjafjarðarsveitar.
12. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 992 - E2601039
Lögð fram til kynningar fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
13. Óshólmanefnd - fundargerð 4.02.2026 - E2602013
Lögð fram til kynningar fyndargerð Óshólmanefndar frá 4.febráur 2026.
14. Norðurorka - Fundargerð 317. fundar - E2602015
Lögð fram til kynningar fundargerð 317.fundar stjórnar Norðurorku.
15. Norðurorka - Fundargerð 318. fundar - E2602016
Lögð fram til kynningar fundargerð 318.fundar stjórnar Norðurorku.
Í fyrsta fundarlið er fjallað um Samþykktir Norðurorku hf. sem hefur látið vinna drög að endurskoðuðum samþykktum félagsins þar sem tekið er tillit til lagabreytinga sem orðið hafa frá gildistöku núgildandi samþykkta. Einnig eru gerðar tillögur að breytingum samþykktanna til að samræma þær eigandastefnu Akureyrarbæjar.
Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri
Eyjafjarðarsveit
Sími: 463-0600
Netfang: finnur@esveit.is