Fundarboð 673. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir
FUNDARBOÐ
 
673. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 12. mars 2026 og hefst kl. 08:00.
 
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi

1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Vinnslutillaga endurskoðaðs Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar var kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 19.02 til 05.03 2026. Opinn íbúafundur var haldinn 25. febrúar síðastliðinn. 12 umsagnir bárust við kynninguna og eru þær til umfjöllunar nefndarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum og ábendingum skipulagsnefndar við gerð Aðalskipulagstillögu. Aðalskipulagstillagan verði síðan tekin aftur fyrir nefndina.
 
2. Hótel við skógarböðin - DSK breyting vegna hreinsistöðvar - E2509010
Grenndarkynningu óverulegrar deiliskipulagsbreytingar Skógarbaða og hótels vegna staðsetningar hreinsistöðvar lauk 27. febrúar sl. og bárust 5 umsagnir við breytinguna.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu málsins verði frestað þar sem ábendingar bárust á grenndarkynningartíma og þörf er á uppfærðum gögnum áður en endanleg afstaða er tekin. Skipulagsfulltrúa er falið að kalla eftir uppfærðum gögnum frá skipulagshönnuði með hliðsjón af framkomnum umsögnum. Málið verður tekið fyrir að nýju þegar gögn hafa borist og grenndarkynnt að nýju skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
3. Hólshús - beiðni um breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis - E2602045
Lóðarhafi Vörðuhóls (L203110) óskar eftir heimild til að breyta deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Hólshúsa sbr. meðfylgjandi erindi frá Landslagi dags. 27.02.26. Breytingin snýst um byggingarmagn lóðarinnar Vörðuhóls. Gildandi deiliskipulag fylgir fundargögnum til glöggvunar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins skal fallið frá grenndarkynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. sömu skipulagslaga. Skipulagsfulltrúa er falið að kalla eftir breytingarblaði deiliskipulagsbreytingarinnar og fullnusta deiliskipulagsbreytinguna þegar öll gögn liggja fyrir.
 
4. Vökuland III - Umsókn um byggingarheimild - E2602030
Byggingarfulltrúa hefur borist umsókn um byggingarleyfi frá Ævari Guðmundssyni fyrir hönd eigenda Vökulands III (L226520) þar sem sótt er um að byggja um 30 fermetra viðbyggingu við suðurhlið íbúðarhússins sbr. meðfylgjandi umsókn og aðaluppdrætti. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið og óskar byggingarfulltrúi því umsagnar nefndarinnar um áformin.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að vísa erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
 
5. Húsnæðisáætlun Eyjafjarðarsveitar 2026 - E2512019
Fyrir fundinum liggja uppfærð drög að húsnæðisáætlun fyrir árið 2026, unnin í framhaldi af umfjöllun skipulagsnefndar á fundi 09.03.2026 og sveitarstjórnar 15.01.2026.
 
6. UMSE - Gull stuðningsaðild að UMFÍ Landsmóti 50 sumarið 2026 - E2602033
Beiðni frá mótsstjórn Landsmóts UMFÍ 50 um að Eyjafjarðarsveit gerist svokallaðir GULL samstarfsaðila að mótinu í ár.
 
7. Félag kraftamanna - Víkingurinn 2026 - E2602034
Beiðni um styrk vegna Víkingsins keppni sterkustu manna landsins.
 
8. Ríkisjarðirnar Háls og Saurbær - E2311010
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir hafa lokið yfirferð vegna verðmata á ríkisjörðunum Hálsi og Saurbæ og liggja gögn frá þeim fyrir fundinum.
Í samskiptunum kemur fram að fulltrúi fjármálaráðuneytisins leggur áherslu á að það sé einungis sveitarfélagið sem eigi kaupréttinn, sbr. 35. gr. jarðalaga um sölu til sveitarfélaga. Að hluta eignanna eða að öllu leyti.
 
9. Sýslum. á Norðurl.eystra - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Yard ehf. vegna Austurhlíðar - E2510009
 
10. Félags-og húsnm.rn. - Ósk um tilnefningar í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð - E2603002
 
11. Norðurorka - Tillögur að breytingum á samþykktum - E2603007
Fyrir fundinum liggja drög að breytingum á samþykktum Norðurorku sem send voru eigendum Norðurorku hf. til umfjöllunar og óskað eftir athugasemdum við drögin ef við á.
Þá býður NO upp á það að forstjóri og lögfræðingur Norðurorku komi til fundar með hluthöfum á staðarfund eða í fjarfundi, til að veita svör við spurningum sem upp kunna að koma.
 
12. Beiðni um endurupptöku og endurskoðun á ákvörðun sveitarstjórnar um synjun á erindi vegna deiliskipulags og breytingar á aðalskipulagi fyrir Stekkjarhól - E2509043
Fyrir fundinum liggur niðurstaða Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
 
13. Skógræktarfélag Eyfirðinga samningur 2026-2027 - E2602004
Tekin eru fyrir drög að samning við Skógræktarfélag Eyfirðinga árin 2026-2027.
Máið var síðast tekið fyrir á 671. funddi sveitarstjórnar þar sem sveitarsrtjóra var falið að lagfæra orðalag í samræmi við umræður á fundinum.
Fyrir fundinum liggja nú lagfærð drög.
 
14. Hopp Akureyri - Hrafnagilshverfi - E2602032
Hopp Akureyri hefur spurst fyrir um það hvort áhugi sé fyrir hendi til að þjónusta þeirra nái í Hrafnagilshverfi.
Framkvæmdaráð tók erindið fyrir á 168. fundi sínum þar sem það tók jákvætt í hugmyndir að aukinni fjölbreytni sem felst í fararskjótum Hopp milli Hrafnagilshverfis og Akureyrarbæjar og beindi erindinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Framkvæmdaráð lagði áherslu á við sína afgreiðslu að ef af þjónustunni verði þá sé rík áhersla lögð á að Hopp hjól séu eingöngu skilin eftir á afmörkuðum stöðum og fjarlægð fljótt þegar þau eru rafmagnslaus eða utan þjónustu.
 
15. UMFÍ - Landsmót 50 ára og eldri í Eyjafjarðarsveit 2026 - E2505007
Undirbúningur vegna Landsmóts UMFÍ 50+ í Eyjafjarðarsveit og er í fulllum gangi. Stefnt er á að á lokadegi mótsins, sunnudaginn 28.júní, verði sérstakt ?fjölskyldufjör? haldið í Hrafnagilshverfinu eftir hádegi. Þar getur öll fjölskyldan tekið þátt í fjölbreyttri dagská og verkefnum sem öll miða að hreyfingu og því að hafa gaman saman.
 
 
Fundargerðir til kynningar

16. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 448 - 2603001F
Lögð fram til kynningar fundargerð 448. fundar skipulagsnefndar.
 
17. Norðurorka - Fundargerð 320. fundar - E2602035
Lögð fram til kynningar fundargerð 320. fundar stjórnar Norðurorku.
 
18. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 994 - E2603008
Lögð fram til kynningar fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
19. Framkvæmdaráð - 168 - 2602016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 168. fundar framkæmdaráðs.
 
 
Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri
Eyjafjarðarsveit
Sími: 463-0600
Netfang: finnur@esveit.is