674. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 26. mars 2026
og hefst kl. 08:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Tekin til umfjöllunar áform landeigenda sem bárust við kynningu vinnslutillögu endurskoðunar aðalskipulags. Jafnframt liggur fyrir álit Náttúrufræðistofnunar vegna hugmynda um nýtt efnistökusvæði í austari kvísl Eyjafjarðarár og umsögn HMS um
vinnslutillöguna dags. 20 mars 2026.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa
hliðsjón af innkomnum umsögnum og viðbrögðum HMS við gerð aðalskipulagstillögu.
Aðalskipulagstillagan verði send Skipulagsstofnun til athugunar skv. 3. mgr. 30. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 þegar uppfærð tillaga liggur fyrir.
2. Sölvastaðir - umsókn um byggingarreit fyrir starfsmannahús - E2603004
Tekin fyrir að nýju umsókn Sölvastaða ehf. um að breyta deiliskipulagi Sölvastaða
svínabús vegna áforma um að bæta við byggingarreit fyrir starfsmannahús innan
skipulagssvæðisins.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að breytingartillögu á deiliskipulagi verði
vísað í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði
að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að
ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á
grenndarkynningartímabilinu.
3. Háaborg 2 L174046 - umsókn um stofnun lögbýlis - E2603009
Óðinn Ásgeirsson óskar umsagnar sveitarfélagsins um umsókn hans til
Atvinnuvegaráðuneytis um stofnun lögbýlis að Háuborg 2 (L174046) sbr. meðfylgjandi
skjöl.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt sé jákvæð umsögn vegna umsóknar
um stofnun lögbýlis á Háuborg 2 L174046 enda telur nefndin að jörðin uppfylli
skilgreiningu 7. mgr. 2. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og skilyrði Atvinnuvegaráðuneytis um
að vera skráð lögbýli.
4. Melgerðismelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð - E2411037
Kynningu vinnslutillögu nýs deiliskipulags fyrir flugskýli á Melgerðismelum lauk 18.
mars sl. 8 umsagnir bárust við tillöguna og eru þær til umfjöllunar nefndarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði sé falið að hafa
innkomnar umsagnir ISAVIA og Samgöngustofu til hliðsjónar varðandi hindrunarflöt
flugbrautar og fjarlægð flugskýla við flugbraut við mótun skipulagstillögu. Svo breytt
skipulagstillaga verði síðan auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
5. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Kynningu skipulagslýsingar vegna deiliskipulags íbúðarsvæðis á Syðri-Varðgjá lauk 18.
mars sl. og bárust 6 umsagnir sem eru nú til umfjöllunar nefndarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði sé falið að hafa hliðsjón
af innkomnum umsögnum við gerð skipulagstillögu. Hafa þarf samráð við Vegagerðina
vegna hönnunar aðkomu á skipulagssvæðið og einnig er bent á umsögn HMS um
fjarlægð íbúðar- og frístundahúsa frá stofn- og tengivegum. Skipulagstillagan verði síðan
lögð fyrir nefndina að nýju.
6. Breyting á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-3030 vegna Blöndulínu 3 - umsagnarbeiðni - E2404000
Akureyrarbær óskar umsagnar sveitarfélagsins um breytingu á Aðalskipulagi
Akureyrarbæjar 2018-2030 vegna Blöndulínu 3 sem er nú í auglýsingu skv. 1. mgr. 36.
gr. skipulagslaga og er umsagnarfrestur til 23. apríl nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
7. Endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 - umsagnarbeiðni - E2505032
Svalbarðsstrandarhreppur óskar umsagnar sveitarfélagsins um endurskoðun
Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps sem er í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 og er umsagnarfrestur til 29. apríl nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
8. Endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar 2012-2024 - Umsagnarbeiðni - E2512013
Hörgársveit óskar umsagnar sveitarfélagsins um endurskoðun Aðalskipulags
Hörgársveitar sem er í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er
umsagnarfrestur til 30. apríl nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
9. Minjasafnið á Akureyri - Rekstrarreikningur Smámunasafnsins 2025 - E2603010
Lagður fram rekstrarreikningur Smámunasafnsins fyrir árið 2025.
10. Kirkjugarðar Laugalandsprestakalls - Stækkun kirkjugarðsins á Grund, erindi Minjastofnunar - E2603011
Lagt fram bréf frá stjórn kirkjugarða Laugalandsprestakalls til sveitarstjórnar vegna
fyrirhugaðrar stækkunar kirkjugarðsins á Grund.
11. Frumvarp til nýrra sveitarstjórnalaga - E2603020
Lagt fram til kynningar frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga.
12. Mötuneyti - útboð 2026 - E2601016
Sveitarstjórn tekur fyrir niðurstöðu útboðs vegna reksturs mötuneytis Eyjafjarðarsveitar.
Útboðið var auglýst þann 2. mars 2026.
Fyrir liggja tilboð sem hafa verið yfirfarin og metin samkvæmt fyrirfram skilgreindum
matsviðmiðum. Nú liggur fyrir tillaga um val á tilboði sem sveitarstjórn er falið að taka
afstöðu til.
13. Vinnuskólinn 2026 - E2603026
Lagður fram samanburður á heildartímum og tímabilum í vinnuskólum við Eyjafjörð.
14. Akureyrarbær - Skýrsla vinnuhóps um málefni fatlaðs fólks - E2603029
15. Leikskólinn Krummakot - Skóladagatal 2026-2027 - E2602011
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að skóladagatal Krummakots veturinn 2026-2027
verði samþykkt. Auk þess leggur skólanefnd til við skólastjóra Hrafnagilsskóla og
Krummakots að nýta sameiginlegan starfsdag til samvinnu milli skólanna.
16. Hrafnagilsskóli - Skóladagatal 2026-2027 - E2602010
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að skóladagatal Hrafnagilsskóla veturinn 2026-
2027 verði samþykkt. Auk þess leggur skólanefnd til við skólastjóra Hrafnagilsskóla og
Krummakots að nýta sameiginlegan starfsdag til samvinnu milli skólanna.
17. Skólanefnd - Vistunartími yngstu barna í leikskóla - E2603014
Skólanefnd er hlynnt því að reynt verði að stytta vistunartíma yngstu barna. Skólanefnd
leggur til við sveitarstjórn að rætt verði við foreldraráð Krummakots um tillögur
stjórnunarteymis Krummakots um vistunartíma fyrir börn á aldrinum 12 - 24 mánaða og
börn sem eiga foreldra í fæðingarorlofi. Lögð verði áhersla á að hagsmunir barnanna
verði hafðir að leiðarljósi.
Einnig samþykkir skólanefnd að beina því til sveitarstjórnar að gjöld fyrir vistun utan
skráðs vistunartíma verði uppfærð í samræmi við aukinn launakostnað sem af þessu
hlýst.
18. Hrafnagilsskóli - Ósk um viðbótartíma til tónmenntakennslu - E2603015
Skólanefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að heimila að auka við stöðugildi í
tónmenntakennslu í samræmi við minnisblað skólastjóra Hrafnagilsskóla. Þannig verði
komið til móts við öfluga tónmenntakennslu og tónlistaruppeldi, bæði í Hrafnagilsskóla
og Krummakoti.
19. Framlög til framboða til sveitarstjórnar - E2603033
Lagðar fram viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka.
20. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að teikningar verði yfirfarnar með tilliti til þess
sem fram kemur á minnisblaði.
21. Fasteignir Eyjafjarðarsveitar - E2502037
Lagt fram kauptilboð í Skólatröð 13.
Fundargerðir til kynningar
22. HNE - Fundargerð 246 - E2603012
Lögð fram til kynningar fundargerð 246. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.
23. SSNE - Fundargerð 81. stjórnarfundar - E2603018
Lögð fram til kynningar fundargerð 81. fundar stjórnar SSNE.
24. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 995 - E2603027
Lögð fram til kynningar fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
25. Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 284 - 2603005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 284. fundar skólanefndar.
23.03.2026
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.