FUNDARBOÐ
675. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 16. apríl 2026
og hefst kl. 08:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Fyrir fundinum liggur samantekt sveitarstjóra á kostnaði við byggingu nýs leikskóla og leikskólalóðar.
2. Bakkaflöt lóðir - E2604015
Fyrir fundinum liggur tillaga sveitarstjóra að verðlagningu lóða á Bakkaflöt.
3. Þormóðsstaðavirkjun í Sölvadal í Eyjafjarðarsveit - E2604012
Þar sem málið varðar fleiri aðila er óskað trúnaðar á gögnum málsins meðan það er í
meðferð.
4. Borgarhóll III - umsókn um byggingarreit - E2603039
Tekin fyrir umsókn frá Fræhnútum ehf. um byggingarreit fyrir íbúðarhús/sumarhús í landi Borgarhóls III (L218453) sem byggir á nýjum upplýsingum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsókn um byggingarreit fyrir sumarhús/íbúðarhús á Borgarhóli III (L218453) verði samþykkt enda er heildarfjöldi íbúðar- og frístundahúsa á upprunajörðinni undir þeim þremur húsum sem heimilt er að byggja samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Bent er á að með afgreiðslunni eru byggingarheimildir jarðarinnar full nýttar samkvæmt gildandi aðalskipulagi.
5. Athafnasvæði á Bakkaflöt - nýtt deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi - E2310005
Viðbrögð HMS vegna yfirferðar stofnunarinnar á deiliskipulagi Bakkaflatar skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lögð fram. Jafnframt fylgja uppfærð deiliskipulagsgögn frá Lilium teiknistofu þar sem brugðist hefur verið við ábendingum HMS. Aðalskipulagsbreytingin vegna Bakkaflatar var staðfest 7. apríl sl.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að svo uppfært deiliskipulag verði samþykkt skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda hefur verið brugðist við athugaemdum HMS, þ.m.t. athugasemd um fjarlægð byggingarreita frá vegum og eru þeir nú ekki innan við 50 m. frá stofn- og tengivegum. Skipulagsfulltrúa er falið að auglýsa deiliskipulagið í B-deild Stjórnartíðinda enda hefur Aðalskipulagsbreyting Bakkaflatar þegar öðlast gildi.
6. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Tekin til umfjöllunar tillaga að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Syðri-Varðgjár frá Landslagi ehf. dags. 30.03.26 en við útfærslu tillögunnar voru hafðar til hliðsjónar umsagnir sem bárust við kynningu skipulagslýsingarinnar.
Skipulagsnefnd felur skipulagshönnuði að fella út textann um kjallara í kafla 4.2 þar sem það er ekki í samræmi við rammahluta aðalskipulags. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að svo breyttri deiliskipulagstillögu verði vísað í kynningu skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7. Núpá og Þormóðsstaðaá - beiðni um breytingu á aðalskipulagi vegna vatnsaflsvirkjana - E2604002
Erindi frá Arctic Hydro hf. sem áformar að reisa allt að 7,0 MW vatnsaflsvirkjun í Núpá og allt að 3,0 MW vatnsaflsvirkjun í Þormóðsstaðaá í Sölvadal. Framkvæmdin krefst breytinga á Aðalskipulagi og er óskað eftir því að sveitarfélagið hefji vinnu við breytinguna. Erindinu fylgir uppdráttur sem sýnir afstöðu helstu mannvirkja skv. frumhönnun.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að málsaðila verði heimilað að vinna skipulagslýsingu skv. 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem verði síðan lögð fyrir nefndina.
8. Eyjafjarðarbraut eystri - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundna haugsetningu og vinnslu efnis - E2601024
N10b ehf. sækir um framlengingu til 2-3 mánaða á framkvæmdaleyfi til tímabundinnar haugsetningar á grjóti og efnisvinnslu á tanga vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Núverandi framkvæmdaleyfi, sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. janúar sl., rennur út 15. apríl nk.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfið til tímabundinnar haugsetningar á grjóti og efnisvinnslu á tanga vestan Eyjafjarðarbrautar eystri verði framlengt til 15. júlí 2026. Efnistaka á svæðinu er óheimil. Rík áhersla er lögð á að tanganum verði skilað að tímabilinu loknu í því ástandi sem hann var áður en framkvæmdir hófust. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu
framkvæmdaleyfis skv. 11. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
9. Ytri-Varðgjá - umsókn um stöðuleyfi fyrir skemmu - E2403029
N10b ehf. sækir um framlengingu til eins árs á stöðuleyfi fyrir 450 fm skemmu á plani við Ytri-Varðgjá en byggingin er nýtt við fyrirhugaðar framkvæmdir á jörðinni. Fyrra stöðuleyfi var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 2. maí 2024.
Skipulaganefnd leggur til við sveitarstjórn að framlenging stöðuleyfis fyrir 450 fm skemmu á plani við Ytri-Varðgjá verði veitt til eins árs og vísar erindinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
10. Frumvarp til nýrra sveitarstjórnalaga - E2603020
Greinargerð um frumvarp til sveitarstjórnarlaga unnin af GB stjórnsýsluráðgjöf.
11. Sýslum. á Norðurl.eystra - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi. - E2510009
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Yard ehf. vegna Austurhlíðar.
12. Fyrirhuguð hækkun VSK á baðlón - E2604013
Ríkisstjórn Íslands boðaði í fjármálaáætlun 2027-2031 hækkun á VSK á aðgangseyri í baðlón úr 11% í 24%.
13. Ungmennaráð - Erindisbréf, endurskoðun - E2603031
Ungmennaráð leggur til við sveitarstjórn að erindisbréf ráðsins sé endurskoðað með það að leiðarljósi að aldursbil verði skilgreint 14-20 ára.
Þá verði skipað í ráðið á eftirfarandi hátt:
A) Nemendaráð Hrafnagilsskóla tilnefni tvo fulltrúa til tveggja ára í senn, tilnefning komi úr hópi nemenda í 9.bekk að lokinni lýðræðislegri kosningu. Á fyrsta ári komi þó tilnefning til eins árs úr hópi nemenda í 10.bekk svo tryggt sé að einungis annar
fulltrúinn fari út í hvert skipti og þeir komi úr sitthvorum aldurshópnum.
B) UMF Samherjar tilnefni einn aðila á aldrinum 16-20 ára til tveggja ára í senn.
C) Sveitarstjórn skipi tvo fulltrúa á aldrinum 16-20 ára til tveggja ára í senn og verður það í hlutverki sveitastjórnar að jafna kynjahlutföll með sínum fulltrúum. Auglýst verði eftir áhugasömum aðilum í sveitarfélaginu við skipun fulltrúa sveitarstjórnar. Jafn margir aðilar séu skipaðir til varamanna af sömu aðilum.
14. Heilsutengd hlunnindi starfsmanna Eyjafjarðarsveitar - E2511021
Lagt fram minnisblað forstöðumanns íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar og skrifstofu og fjármálastjóra vegna heilstutengdra hlunninda starfsmanna Eyjafjarðarsveitar en sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar bókaði á 666. fundi sínum:
Sveitarstjórn tekur undir sjónarmið (velferðar- og menningarnefndar) þess efnis að endurskoða þurfi stefnu um fríðindi starfsfólks út frá áherslum Heilsueflandi samfélags. Sveitarstjórn óskar þess að stofnað sé sérstakt mál utan um erindið og að nefndin taki saman minnisblað um hugmyndir sínar. Er þessu minnisblaði ætlað að koma af stað umræðum um málum í velferðar- og menningarnefnd að beiðni formanns nefndarinnar.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi minnisblað með drögum af heilsutengdum hlunnindum starfsmanna Eyjafjarðarsveitar með smávægilegum athugasemdum og felur skrifstofu- og fjármálastjóra að breyta minnisblaðinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir sveitarstjórn.
15. Afreks- og hvatningarstyrkur Eyjafjarðarsveitar - E2602040
Sveitarstjórn bókaði á 666. fundi sínum: "Jafnframt beinir sveitarstjórn til Velferðar- og menningarnefndar að endurskoða ferðastyrkinn með það að leiðarljósi að fella hann niður en stofna nýjan sértækan úthlutunarpott með fjárheimild upp á 500.000kr sem ætlaður er sérstaklega til að efla ungmenni í sveitarfélaginu. Óskar sveitarstjórn eftir að nefndin taki þetta til umræðu og komi með tillögur að útfærslum. Frá og með 1. janúar 2026 verður ferðastyrkurinn lagður af í núverandi mynd."
Velferðar- og menningarnefnd tók til umræðu drög að reglum um afreks- og hvatningarstyrk Eyjafjarðarsveitar. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að drögin verði samþykkt og gefin út sem reglur sveitarfélagsins varðandi styrkveitinguna.
Umsóknarfrestur verður til 1. nóvember ár hvert. Reglur verði endurmetnar að lokinni fyrstu úthlutun.
16. Fasteignir ríkisins í Eyjafjarðarsveit - E2604011
17. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Framkvæmdaráð fór yfir kostnaðartölur vegna byggingar á leikskóla og leikskólalóðar. Brynjólfur Árnason mætti til fundar undir þessum fundarlið. Lagt fram til kynningar í sveitarstjórn.
18. SSNE - Loftlagsstefna Norðurlands eystra - E2601032
Skipun í samvinnuvettvang sveitarfélaga fyrir framfylgd Loftslagsstefnu Norðurlands eystra.
19. Byggðaáætlun - tækifæri til að hafa áhrif á aðgerðaáætlun 2027-2031 - E2604010
Lagt er fram til kynningar vinnuskjal aðgerðaáætlunar 2027?2031 sem unnið er í tengslum við mótun nýrrar byggðaáætlunar 2027-2041. Skjalið hefur verið kynnt á samráðsfundum með landshlutasamtökum sveitarfélaga og er ætlað að vera grunnur að frekari umræðu og vinnslu. Um er að ræða vinnuskjal sem getur tekið breytingum á grundvelli athugasemda og áframhaldandi samstarfs við ráðuneyti.
20. Skógræktarfélag Íslands - Ályktun samþykkt á fulltrúafundi 28. mars 2026 - E2603044
Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands um breytingartillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla.
Fundargerðir til kynningar
21. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 996 - E2603037
Lögð fram fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
22. SSNE - Fundargerð 82. stjórnarfundar - E2603036
Lögð fram fundargerð 82. fundar stjórnar SSNE.
23. Hættumatsnefnd Eyjafjarðarsveitar - fundargerð 8. fundar - E2603040
Lögð fram fundargerð 996. fundar Hættumatsnefndar Eyjafjarðarsveitar.
24. Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar - fundargerð 19. fundar - E2604016
Fundargerð 19. fundar svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar lögð fram til kynningar.
25. Norðurorka - Fundargerð 321. fundar - E2604008
Lögð fram fundargerð 321. fundar stjórnar Norðurorku.
26. Norðurorka - Fundargerð 322. fundar - E2604009
Lögð fram fundargerð 322. fundar stjórnar Norðurorku.
27. Velferðar- og menningarnefnd - 21 - 2603011F
Fundargerð 21. fundar velferðar- og menningarnefndar lögð fram til kynningar.
28. Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar - 14 - 2603016F
Fundargerð 14. fundar ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
29. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 450 - 2604001F
Fundargerð 450. fundar skipulagsnefndar lögð fram til kynningar.
30. Framkvæmdaráð - 169 - 2604004F
Fundargerð 169. fundar framkvæmdaráðs lögð fram til kynningar.
13.04.2026
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.