Fundarboð 676. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir
FUNDARBOÐ
 
676. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, mánudaginn 27. apríl 2026 og hefst kl. 16:00.
 
 
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar 2025 - E2604039
Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2025 er hér lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn. Reikningurinn er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög og viðeigandi reglur um reikningsskil sveitarfélaga og tekur til A og B hluta starfseminnar.
 
Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins var jákvæð á árinu og nam 274,1 m.kr. fyrir A og B hluta, sem er betri afkoma en árið 2024. Rekstrartekjur námu tæpum 2,0 milljörðum króna og jukust milli ára, einkum vegna hækkunar skatttekna og jöfnunarsjóðsframlaga.
 
Rekstrargjöld hækkuðu einnig, þar sem laun og launatengd gjöld eru áfram stærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins. Afkoma fyrir afskriftir er sterk, sem endurspeglar traustan rekstur grunnþjónustu.
 
Handbært fé frá rekstri sveitarfélagsins nam 413,4 m.kr. á árinu 2025 fyrir A hluta og 415,8 m.kr. fyrir A og B hluta. Þetta sýnir að grunnrekstur sveitarfélagsins skilar sterku og stöðugu sjóðstreymi, sem er lykilforsenda fyrir því að standa undir fjárfestingum og skuldum. Þrátt fyrir verulegar fjárfestingar á árinu er ljóst að reksturinn sjálfur er burðugur og skapar traustan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu.
 
Efnahagsstaða sveitarfélagsins er áfram sterk. Eigið fé nam 2.272,7 m.kr. í árslok og eiginfjárhlutfall er hátt, sem gefur svigrúm til áframhaldandi uppbyggingar og viðhalds innviða.
 
2. Þormóðsstaðavirkjun í Sölvadal í Eyjafjarðarsveit - E2604012
Tekinn er fyrir á ný drög af samningi vegna virkjanaáforma Arctic Hydro hf. í landi sveitarfélagsins að Þormóðsstöðum.
 
Sveitarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi og fól sveitarstjóra að koma ábendingum til skila í samræmi við umræður á fundinum. Samningsdrög hafa verið uppfærð í samræmi við ábendingu sveitarstjórnar eins og fram kemur í nýrri grein 6.2 um sérákvæði vegna skógræktarsamnings í landi Þormóðsstaða.
 
Þar sem málið varðar fleiri aðila er óskað trúnaðar á gögnum málsins meðan það er í meðferð.
 
3. Öngulsstaðir 2 L152863 - merkjalýsing vegna nýrrar lóðar - E2604018
Landeigendur Öngulsstaða 2 sækja um að fá að stofna lóð á jörðinni sem fengi staðfangið Öngulsstaðir 6. Jafnframt er sótt um afmörkun spildu úr landi Öngulsstaða 2 sem á að sameinast lóðinni Öngulsstaðir L221874.
 
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt leggur nefndin til að lóðin fái staðfangið Öngulsstaðir 6.
 
4. Hranastaðir L152652 - afmörkun lóðar undir hænsnahús - E2604021
Landeigendur Hranastaða L152652 sækja um stofnun 11.760,8 fm lóðar undir hænsnahús á jörðinni skv. merkjalýsingu unna af Hákoni Jenssyni dags. 30.03.2026. Sótt er um að nýja lóðin fái staðfangið Þorbjargarhagi.
 
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt leggur nefndin til að lóðin fái staðfangið Þorbjargarhagi.
 
5. Umsókn um uppsetningu hraðhleðslustöðva í Eyjafjarðarsveit - E2604027
Erindi frá Instavolt Iceland ehf. þar sem óskað er eftir afnotum af bílastæðum í Eyjafjarðarsveit til uppsetningar og reksturs hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla.
 
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum og bendir á að gert sé ráð fyrir hraðhleðslustöðvum á bílaplani við Laugarborg. Að öðru leiti taldi nefndin sig ekki hafa heimild til frekari afgreiðslu og vísaði málinu til sveitarstjórnar.
 
6. Reykhús - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku 2024 - E2405027
Páll Ingvarsson sækir um framlengingu á framkvæmdaleyfi til efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Reykhúsa (E24C) sem gefið var út 31. maí 2024 og gildir til 15. maí 2026. Fyrra leyfi heimilaði efnistöku 15.000 rúmmetra af sandi en eftir á að taka 6000 rúmmetra. Sótt er um að framlengja framkvæmdaleyfið til áramóta 20262027 og fylgja gögn fyrri framkvæmdaleyfisumsóknar fundargögnum.
 
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að samþykkja framlengingu á gildistíma framkvæmdaleyfis til efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Reykhúsa (E24C) til 31. desember 2026, á grundvelli fyrirliggjandi gagna, enda hafi ekki orðið breytingar á umfangi eða forsendum framkvæmdarinnar frá útgáfu leyfis þann 31. maí 2024.
 
7. Hólmatröð 12 - Umsókn um byggingarleyfi - E2604035
Erindi dagsett 22.04.2026 þar sem JS Trésmíði ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir raðhúsi á lóðinni Hólmatröð 12 í Eyjafjarðarsveit. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Vigfús Halldórsson. Samkvæmt framlögðum gögnum fer fyrirhugað byggingarmagn 57,1 m² umfram heimilt byggingarmagn á lóðinni.
 
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum og telur að um óverulegt frávik sé að ræða og ekki sé talin þörf á breytingu á deiliskipulagi með vísan í ákvæði 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd lagði til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt.
 
8. Hótel við skógarböðin - DSK breyting vegna hreinsistöðvar - E2509010
Uppfærð tillaga að deiliskipulagsbreytingu vegna staðsetningar hreinsistöðvar fyrir Ytri-Varðgjá, baðstað og hótel lögð fram. Breytingin var upphaflega grenndarkynnt í byrjun árs þar sem bárust athugasemdir og var skipulagshönnuði falið að uppfæra breytingartillöguna með tilliti til þeirra. Hönnuður hefur nú fundað með fulltrúa Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra sem hefur samþykkt fyrirliggjandi breytingartillögu fyrir hönd HNE.
 
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 451. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi breytingartillögu á deiliskipulagi Ytri-Varðgjár, baðstaðar og hótels, vegna staðsetningar hreinsistöðvar, sé samþykkt enda hafi verið brugðist við kröfum frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra varðandi hreinsistöðina með tilliti til viðtakans Eyjafjarðarár á svæðinu.
 
9. Kaupangssvæðið - ásýnd byggðar og aðalskipulag - E2604037
Erindi þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna Kaupangssvæðisins, annars vegar um afmörkun byggingarsvæða og hins vegar um ákvæði er varða ásýnd, byggingarstíl og yfirbragð byggðar.
 
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að áformum um stækkun á íbúðarsvæði sé hafnað enda er framboð íbúðarsvæða á skipulagi nú þegar umfram þörf samkvæmt húsnæðisáætlun.
 
Skipulagsnefnd leggur einnig til við sveitarstjórn að erindinu varðandi byggingarstíl sé hafnað enda séu þessar kvaðir almennt ekki settar í aðalskipulag og þá eigi svæðið við eignir fleiri aðila.
 
10. Þverá - framkvæmdaleyfisumsókn vegna efnistöku 2026 - E2602027
Sótt er um efnistöku úr Þverá í Eyjafjarðarsveit. Um er að ræða einskiptisaðgerð til að ná upp efni og dýpka árfarveginn aftur en að sögn landeiganda er grunnvatnsstaða orðin mjög há á svæðinu í kring og veruleg hætta orðin á að áin brjóti sig út úr farveginum bæði til suðurs og norðurs.
 
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 450. fundi sínum og frestaði erindinu meðan kallað var eftir umsögn Vegagerðarinnar sem nú liggur fyrir.
 
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að umsókn um framkvæmdaleyfi verði samþykkt í landi Þverár. Þá verði tekið mið af umsögn Vegagerðarinnar við útgáfu framkvæmdaleyfisins þar sem ekki verði farið upp fyrir svæði númer tvö og að fylgst verði með þróun farvegar við stokk á vegi 829-01. Efnistökuaðili verði ábyrgur fyrir að bregðast við ef breyting verður á farveginum við stokkinn sem rekja má til efnistökunnar.
 
11. Eyjafjarðarbraut eystri - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundna haugsetningu og vinnslu efnis - E2601024
N10b ehf. sækir um framlengingu til 2-3 mánaða á framkvæmdaleyfi til tímabundinnar haugsetningar á grjóti og efnisvinnslu á tanga vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Núverandi framkvæmdaleyfi, sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. janúar sl., rennur út 15. apríl nk.
 
Sveitarstjórn frestaði á síðasta fundi afgreiðslu erindinsins til þessa fundar og kallaði eftir afstöðu Óshólmanefndar. Afstaðan liggur ekki fyrir að svo stöddu.
 
12. Starfsemi Kristnesspítala - E2511018
Oddviti sveitarstjórnar og sveitarstjóri hafa átt fundi með fjármálaráðherra og þingmönnum vegna málsins og uppfæra sveitarstjórn um stöðu málsins.
 
13. Gjaldskrár Eyjafjarðarsveit - E2604040
Almenn umræða um gjaldskrár sveitarfélagsins.
 
Fundargerðir til kynningar
14. Tónlistarskóli Eyjafjarðar - Fundargerð 153. fundar skólanefndar - E2604019
Lögð fram til kynningar fundargerð 153. fundar skólanefndar Tónlistaskóla Eyjafjarðar.
 
15. Tónlistarskóli Eyjafjarðar - Fundargerð 152. fundar skólanefndar - E2604020
Lögð fram til kynningar fundargerð 152. fundar skólanefndar Tónlistaskóla Eyjafjarðar.
 
16. Fundargerðir 2026 farsældarráðs Norðurlands eystra - E2604024
Lögð fram til kynningar fundargerð Farsældaráðs Norðurlands eystra.
 
17. HNE - Fundargerð 247 - E2604033
Lögð farm til kynningar 247. fundargerð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
 
18. Norðurorka - Eigendafundur 9. apríl 2026 - E2604036
Lögð fram til kynningar fundargerð eigendafundar Norðurorku frá 9.apríl 2026.
 
19. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 451 - 2604012F
Fundargerð 451. fundar skipulagsnefndar lögð fram til kynningar.
 
20. Velferðar- og menningarnefnd - 22 - 2604009F
Fundargerð 22. fundar Velferðar- og menningarnefndar lögð fram til kynningar.
 
21. Öldungaráð - 5 - 2604003F
Fundargerð 5. fundar öldungaráðs lögð fram til kynningar.
 
 
 
Kær kveðja
Finnur Yngvi Kristinsson
Sveitarstjóri, Eyjafjarðarsveit