FUNDARBOÐ
678. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 4. júní 2026 og hefst kl. 08:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Úrslit kosninga til sveitarstjórnar 2026 - E2605043
Fyrir fundinn er lögð skýrsla kjörstjórnar um atkvæðatölur framboðslista ásamt fundargerðum kjörstórnar fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026.
2. Kjör oddvita og varaoddvita - E2605044
Fyrir fundinum liggur sú tillaga að oddviti og varaoddviti sveitarstjórnar séu kjörnir til fjögurra ára.
Kjör oddvita og varaoddvita fer fram með nafnlausri atkvæðagreiðslu.
3. Ráðning ritara sveitarstjórnar - E2605045
Sveitarstjórn ákveður ráðningu ritara sveitarstjórnar fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Fyrir fundinum liggur sú tillaga að Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri Eyjafjarðarsveitar, verði ráðinn fundarritari.
4. Ákvörðun um fundartíma sveitarstjórnar 2026-2030 - E2605046
Sveitarstjórn ákveður almenn viðmið um tíðni og tímasetningu sveitarstjórnarfunda. Þá ákveður sveitarstjórn hvenær síðasti sveitarstjórnarfundur fyrir sumarfríð skuli almennt haldinn og hvenær störf sveitarstjórnar hefjist almennt að loknu sumarfríi.
Fyrir fundinum liggur sú tillaga að sveitarstjórn fundi alemnnt á tveggja vikna fresti. Fundir verði á fimmtudegi klukkan 8:00.
Sumarfrí sveitarstjórnar á kjörtímabilinu hefjist almennt fyrir 17.júní og fyrsti fundur að loknu sumarfríi sé haldinn eigi síðar en 16.ágúst. Aukafundir verði haldnir ef brýn þörf er á.
Þá verði tekið mið af því að síðasti fundur fyrir jól sé almennt ekki haldinn síðar en í fyrstu heilu viku desember og fyrsti fundur á nýju ári skuli almennt ekki haldinn síðar en í annarri viku janúar.
5. Ráðning sveitarstjóra - E2605040
Í samráði við fulltrúa sveitarstjórnar var staða sveitarstjóra auglýst laus til umsóknar þann 21.maí síðastliðinn. Umsóknarfrestur rann út þann 3.júní og tekur sveitarstjórn nú formlega ákvörðun um næstu skref.
6. Stefnumál lista sveitarstjórnar 2026-2030 - E2605042
Sveitarstjóri hefur tekið saman lista yfir helstu áherslumál framboðanna í sveitarstjórn fyrir kjörtímabilið 2026-2030 og liggur sú samantekt fyrir fundinum.
7. Móttaka nýrra sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna - E2605041
Sveitarstjóri hefur tekið saman handbók með helstu upplýsingum fyrir móttöku nýrra sveitarstjórnarfulltrúa, nefndarmanna og nýs sveitarstjóra. Handbókinni er ætlað að einfalda aðilum að komast hratt og örugglega inn í störf sín á kjörtímabilinu.
Þá liggur fyrir kynning á samþykktum um stjórn Eyjafjarðarsveitar og kynning á siðarreglum kjörinna fulltrúa.
8. Skipan í nefndir og ráð 2026-2030 - E2605039
Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir, ráð, samstarfshópa og stjórnir.
01.06.2026
Hermann Ingi Gunnarsson, Oddviti.