FUNDARBOÐ
679. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 18. júní 2026 og hefst kl. 08:00
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Ráðning sveitarstjóra - E2605040
Fyrir liggur niðurstaða ráðningarferlis vegna stöðu sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar. Á fundi sveitarstjórnar 4. júní 2026 var oddvita falið umboð til að vinna að ráðningu sveitarstjóra í góðu samráði við sveitarstjórnarfulltrúa. Ráðningarferli hefur nú verið lokið og leggur oddviti fram tillögu um ráðningu sveitarstjóra til afgreiðslu sveitarstjórnar.
2. Skipan í nefndir og ráð 2026-2030 - E2605039
Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir sveitarfélagsins fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Þær nefndir og ráð sem á eftir að skipa í eru:
Atvinnu- og umhvefisnefnd
Velferðar- og menningarnefnd
Skólanefnd
Almannavarnarnefnd Eyjafjarðar
Skólanefnd Tónlistaskóla Eyjafjarðar
Óshólmanefnd
Svæðisskipulag Eyjafjarðar
Öldungaráð, þörf er á að kalla eftir tilnefningum frá Félagi eldri borgara.
Ungmennaráð, þörf er á að aðlaga erindisbréf og kalla eftir skipunum í kjölfar þess.
3. Borgarhóll III - umsókn um byggingarreit - E2603039
4. Grænahlíð L152615 - umsókn um byggingarreit fyrir fjós - E2603024
Tekin fyrir að nýju umsókn Dalanauts ehf. um byggingarreit fyrir um 4000 fermetra fjós á jörðinni Grænuhlíð. Erindið var seinast á dagskrá sveitarstjórnar 26. mars sl. þar sem óskað var umsagnar Vegagerðarinnar vegna fjarlægðar byggingar frá vegi og Veðurstofu Íslands vegna ofanflóðamats. Umbeðin gögn liggja nú fyrir.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 453. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að byggingarreitur undir fjós á jörðinni Grænuhlíð sé samþykktur enda eru ekki gerðar athugasemdir við staðsetningu hans í umsögnum Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands. Þó er tekið undir tilmæli Veðurstofunnar um lengingu varnargarðs eða bygging og nánasta umhverfi verði hannað með skriðuhættu í huga.
5. Ytri-Varðgjá 2 og 3 - Merkjalýsing vegna afmörkunar lóða - E2604041
Lögð er fram merkjalýsing vegna afmörkunar nýrra lóða úr Ytri-Varðgjá 2, L232364, og Ytri-Varðgjá 3, L152838. Með merkjalýsingunni eru afmarkaðar 15 íbúðarlóðir og eru þær hluti af og í samræmi við auglýst deiliskipulag íbúðarsvæðis á Ytri-Varðgjár, dags. 19.06.2025, auk nýrrar fráveitulóðar. Samþykkt deiliskipulag fylgir fundargögnum.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 452. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 enda er hún í samræmi við deiliskipulag íbúðarsvæðis Ytri-Varðgjár sem öðlaðist gildi 03.07.2025.
6. Bakkaflöt 1-9 - merkjalýsing og stofnun lóða - E2605027
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing vegna stofnunar lóða úr Bakkaflöt L235554. Með merkjalýsingunni eru afmarkaðar og stofnaðar lóðirnar Bakkaflöt 1-9, í samræmi við deiliskipulag Bakkaflatar sem fylgir jafnframt fundargögnum.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 452. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 enda er hún í samræmi við deiliskipulag athafnasvæðis á Bakkaflöt sem öðlaðist gildi 05.05.2026.
7. Hrafnagilsskóli - umsókn um bráðabirgðar viðbyggingu - E2605047
Eyjafjarðarsveit sækir um byggingarleyfi fyrir bráðabirgðarviðbyggingu við Hrafnagilsskóla sbr. meðfylgjandi erindi og afstöðumynd. Um er að ræða gámaeiningar sem staðsettar verða sunnan við núverandi byggingu yngsta stigs og er gert ráð fyrir að byggingarnar víki þegar framkvæmdum við skóla og íþróttamiðstöð lýkur.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 452. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt þar sem um er að ræða tímabundna byggingu. Um er að ræða óverulegt frávik frá deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal því fallið frá breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu. Jafnframt áréttar skipulagsnefnd að gámarnir verði fjarlægðir eins fljótt og unnt er.
8. Sveinsbær - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - E2606006
Jólagarðurinn ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir um 70 fermetra hús á lóð Sveinsbæjar L208354 á meðan unnið er að undirbúningi við framtíðarstaðsetningu hússins.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 452. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að veitt verði stöðuleyfi fyrir húsinu til 12 mánaða á lóð Sveinsbæs L208354 sbr. meðfylgjandi afstöðumynd og vísar umsókninni til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
9. Melgerðismelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð - E2411037
Deiliskipulagstillaga fyrir flugskýli á Melgerðismelum var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 1. apríl til 15. maí sl. og bárust 8 umsangir sem eru nú til umfjöllunar sveitarstjórnar.
Skipulagsnefnd tók erindið til umfjöllunar á 452. fundi sínum og lagði fram tillögur til sveitarstjórnar í afgreiðslu sinni.
10. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Deiliskipulagstillaga fyrir nýtt íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár (L152799) var kynnt skv. 4 mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var umsagnarfrestur til 13. maí sl. 8 umsagnir bárust um tillöguna og eru þær nú til umfjöllunar.
Skipulagsnefnd tók tillöguna fyrir á 452. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum við gerð skipulagstillögu. Sérstaklega er bent á umsögn Minjastofnunar Íslands um að setja kvaðir í skipulagið um að fornleifarannsóknir fari fram áður en framkvæmdir hefjast og umsögn Vegagerðarinnar vegna tenginga við Veigastaðaveg. Skipulagsnefnd bendir á að veghalli aðkomuvegar má vera 12% og húsagatna 9%. Mælst er til að vegtenging við Smáralæk verði nýtt fyrir skipulagssvæðið. Skipulagshönnuði er jafnframt falið að vinna tillöguna og hönnun aðkomu inn á skipulagssvæðið í samráði við Vegagerðina. Uppfærð tillaga verði síðan lögð fyrir nefndina að nýju.
11. Vaglir L152818 - Umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku - E2503020
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi til efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Vagla L152818 á svæði E25B. Erindið var seinast á dagskrá nefndarinnar 24. mars 2025 þar sem því var frestað og óskað eftir frekari gögnum frá landeiganda sem liggja nú fyrir. Óskað er eftir heimild til að taka 40.000 rúmmetra af sandi á fjögurra ára tímabili eða 10.000 rúmmetra á ári. Umsókninni fylgja umsagnir Fiskirannsókna ehf., Veiðifélags Eyjafjarðarár og Fiskistofu auk minnisblaðs frá Verkís um mat á núverandi aðstæðum á efnistökusvæðinu.
Í minnisblaði frá Verkís kemur fram að metið sé að aðstæður hafi batnað á efnistökusvæðinu frá því að fyrri efnistöku lauk og að áframhaldandi takmörkuð efnistaka á svæðinu geti talist forsvaranleg sé hún unnin innan skilgreinds svæðis, með eðlilegu verklagi og með viðeigandi frágangi og eftirfylgni.
Ekki er lagst gegn framkvæmdinni í umsögnum Fiskistofu, Veiðifélags Eyjafjarðarár og Fiskirannsókna ehf.
Skipulagsnefnd tók erindið til umfjöllunar á 452. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku 10.000 rúmmetra af efni á ári í tvö ár á efnistökusvæði E25B í Eyjafjarðará í landi Vagla. Nefndin telur mikilvægt að framkvæmdin taki mið af þróun svæðisins hverju sinni og að forðast skuli óhóflega og staðbundna ofdýpkun innan farvegar, sbr. umsögn Verkís. Þá skal fara fram seiðamæling fyrir og eftir framkvæmdir, áhrifin skulu metin með loftmyndum og veiðibókum og allt rask á farvegi árinnar skal fara fram á tímabilinu 1. desember til 15. júní sbr. umsögn Fiskirannsókna ehf. Framkvæmdir skulu jafnframt stöðvaðar á veiðitímabili Eyjafjarðarár og snyrtilega skal gengið um svæðið á framkvæmdatíma og jafnframt að framkvæmdum loknum. Ganga þarf úr skugga um hvort einhverjar lagnir séu fyrir á svæðinu. Áður en framkvæmdarleyfi verður gefið út þarf að liggja fyrir samkomulag milli landeigenda um nýtingu efnistökusvæða E25A og E25B sbr. Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
12. Fellshlíð - Umsókn um byggingarheimild - E2605049
Eigendur Fellshlíðar L152593 sækja um byggingarreit fyrir viðbyggingu norðvestan við núverandi fjós.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 452. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að byggingarreitur fyrir viðbyggingu við núverandi fjós á Fellshlíð verði samþykktur. Þar sem erindið er ekki talið varða hagsmuni annarra en umsækjenda og sveitarfélagsins skuli fallið frá grenndarkynningu sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13. Tjarnaland land L187527 - umsókn um byggingarreit fyrir íbúðarhús - E2606005
Eigendur Tjarnalands lands L187527 sækja um byggingarreit fyrir 80-100 fermetra íbúðarhús á landareign sinni sbr. meðfylgjandi umsókn, afstöðumynd og uppdrátt. Umsókninni fylgir undirritað samþykki eigenda Ytri-Tjarna (L152835) og Tjarnagerðis (L152810) fyrir byggingaáformunum.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 453. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að umsókn um byggingarreit fyrir einbýlishús á Tjarnalandi landi L187527 verði vísað í grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar ef allir hagsmunaaðilar lýsa því skriflega yfir að þeir geri ekki athugasemd við áformin. Ef engar athugasemdir berast á grenndarkynningartímabili telst erindið samþykkt.
14. Ytri-Varðgjá - framkvæmdaleyfi vegna efnistöku - E2604047
Erindi frá Finni ehf. þar sem óskað er eftir heimild til 15.000 m³ efnistöku í Eyjafjarðará í landi Ytri-Varðgjár næstu 3 árin. Fyrir liggja gögn vegna framkvæmdarinnar, þ.m.t. umsagnir Fiskistofu og Veiðifélags Eyjafjarðarár.
15. Hólmatröð 8 - fyrirspurn vegna byggingaráforma - E2606011
Fyrir fundinum liggur erindi frá Mjölni Tréverki vegna hönnunar húss að Hólmatröð 8. Óskað er eftir yfirferð og afstöðu skipulagsnefndar til fyrirliggjandi gagna, m.a. með tilliti til byggingarreits, hæðar húss og annarra atriða sem varða samræmi við gildandi deiliskipulag.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 453. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við erindið þar sem um óverulegt frávik frá deiliskipulagi sé að ræða skv. 3. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal því fallið frá breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu.
16. Þjóðlendan Laugafell L237821 - afmörkun lóðar undir skálabyggingar - E2606017
Lögð fyrir merkjalýsing þar sem verið er að staðfesta afmörkun lóðar undir skálabyggingar á Laugafelli L172584. Laugafell L172584 er þegar til í fasteignaskrá og innan hennar eru skráðir 4 mannvirki/skálar. Með þessari merkjalýsingu er afmörkun hennar hnitsett en lóðin kemur úr þjóðlendunni Laugafelli L237821 og er 29.526,3 m² að stærð. Lóðin er samkvæmt samþykktu deiliskipulagi Hálendismiðstöðvar í Laugafelli sem fylgir fundargögnum.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 453. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Nefndin leggur jafnframt til að staðfangi þjóðlendunnar Laugafells L237821 verði breytt i "Laugafell þjóðlenda" til þess að báðar fasteignir hafi ekki sömu staðföng.
17. Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í landi Teigs - E2410001
Teigur ehf. sækir um framlengingu á framkvæmdaleyfi til efnistöku á sandi úr sandeyrum í Eyjafjarðará í landi Teigs L152808 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. janúar 2025. Framkvæmdaleyfið gilti til 9. apríl 2026 og heimilaði efnistöku 20.000 m³ af sandi. Samkvæmt upplýsingum frá umsóknaraðila er búið að taka 8.992 m3 af því efni og því er óskað er eftir framlengingu leyfis til 20. júní 2027. Fylgigögn fyrra framkvæmdaleyfis eru með fundargögnum.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 453. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfið verði framlengt og að heimilt verði að taka það efni sem eftir á að taka miðað við fyrra framkvæmdaleyfi. Framkvæmdaleyfið skal það gilda til 20. júní 2027. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
18. Skipan í nefndir og ráð 2026-2030 - E2605039
Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir, ráð, samstarfshópa og stjórnir.
19. Hrafnagilsskóli - Innivist-loftgæðamælingar - E2606022
Efla hefur framkvæmt skoðun á loftgæðum í Hrafnagisskóla og liggur samantekt fyrir fundinum.
Í skýrslunni kemur fram að æskilegt sé að leita leiða til að ná tökum á hitasveiflum í sumum rýmum til að auka gæði innivistar, þá sé mikilvægt að koma loftræstingu á þar sem hún er ekki til staðar til að draga úr myndum koltvísýrings í þeim rýmum og dreifa betur innblástursstútum þar sem loftræsting er til staðar.
Samkvæmt skýrslunni er ekki neinn sjánlegur raki í byggingunni þó tekið sé fram að hann geti leynst undir yfirborði og mögulegt sé að kanna það betur með sýnatöku, sérstaklega í útveggjum.
20. Sýslum. á Norðurl.eystra óskar eftir umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Fjordside Byways ehf. - E2605010
Lagt er fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dags. 7. maí 2026, vegna umsóknar Fjordside Byways ehf. um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-C (minna gistiheimili) að Þverá I, lóð nr. 5, í Eyjafjarðarsveit. Sótt er um leyfi fyrir allt að sex gesti. Óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknarinnar.
Húsnæðið er frístundahús á skilgreindu frístundasvæði í aðalskipulagi. Fjarlægð að mörkum næsta íbúðarsvæðis eru rúmir 100 metrar og í næsta íbúðarhús eru um 175 metrar. Fjarlægð að mörkum landbúnaðarsvæðis eru um 17 metrar.
21. Rauði krossinn - Fjöldahjálparstöðvar á Norðurlandi - E2605013
Lagt er fram erindi frá Rauða krossinum við Eyjafjörð, dags. 7. maí 2026, þar sem sveitarfélög á Norðurlandi eystra eru hvött til að taka til skoðunar og skráningar með formlegum hætti fjöldahjálparstöðvar innan sinna marka.
22. Víðir Sveinn Ágústsson - Uppsögn samnings um jarðhita við Ylur s.f. - E2605038
Fyrir fundinum liggur tilkynning um uppsögn á "Samningi um jardhita" sem gerdur var milli landeigenda Holsgerdis og Torfufells annars vegar og Yls s.f. hins vegar, og undirritadur var ad Torfufelli hinn 1. ágúst 1991.
23. UMF Samherjar - Beiðni um samtal og samstarf - E2606008
Lagt er fram erindi frá Ungmannafélaginu Samherjum dagssett 2. júní 2026 þar sem óskað er eftir viðræðum við sveitarfélagið um aukið samstarf til framtíðar. Félagið vísar til vaxandi umfangs starfsemi sinnar og leggur meðal annars til að rætt verði um sameiginlegan starfsmann, endurskoðun samstarfssamnings og framtíðarsýn um bætta félagaaðstöðu.
24. UMF Samherjar - Tillaga um viðburðarnefnd - E2606009
Lagt er fram erindi, dags. 2. júní 2026, frá Ungmannafélaginu Samherjum þar sem lögð er fram tillaga um stofnun viðburðarnefndar á vegum sveitarfélagsins með það að markmiði að undirbúa og þróa nýja bæjarhátíð fyrir Eyjafjarðarsveit. Jafnframt er lagt til að nefndin hafi hlutverk við stefnumótun og samræmingu viðburða í sveitarfélaginu.
Fundargerðir til kynningar
25. Markaðsstofa Norðurlands - Starf Flugklasans Air 66N 15. okt. 2025 - 21. apríl 2026 - E2606004
Lögð fram til kynningar skýrsla frá Markaðsstofu Norðurlands um starf Flugklasans Air 66N dagana 15. október 2025 til 21. apríl 2026.
26. Norðurorka - Fundargerð 323. fundar - E2605007
Lögð fram til kynningar fundargerð 323. fundar stjórnar Norðurorku.
27. Fundargerð vorfundar almannavarnanefndar 5.05.2026 og ársreikningur 2025 - E2605008
Lögð fram til kynningar fundargerð vorfundar Almannavarnanefndar í umdæmi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra haldinn 5. maí 2026 og ársreikningur 2025.
28. Flokkun Eyjafjörður ehf. - Stjórnarfundur 26. maí 2026 - E2605037
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnarfundar Flokkun Eyjafjarðar frá 26. maí 2026.
29. Flokkun Eyjafjörður ehf. - Ársreikningur 2025 - E2606003
Lagt fram til kynningar ársreikningur Flokkun Eyjafjörður fyrir árið 2025.
30. SSNE - Fundargerð 6. Farsældarráðs Norðurlands eystra - E2605034
Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra.
31. SSNE - Þinggerð ársþings 2026 - E2605021
Lögð fram til kynningar þinggerð ársþings Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra.
32. SSNE - Fundargerð 83. stjórnarfundar - E2605020
Lögð fram til kynningar fundargerð 83. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE.
33. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 997 - E2605006
Lögð fram til kynningar fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
34. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 998 - E2605023
Lögð fram til kynningar fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
35. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 999 - E2606007
Lögð fram til kynningar fundargerð 999. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
36. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 1000 - E2606020
Lögð fram til kynningar fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
37. Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar - 16 - 2605011F
Lögð fram til kynningar fundargerð 16. fundar Ungmennaráðs Eyjafjarðarsveitar.
38. Framkvæmdaráð - 170 - 2606006F
Lögð fram til kynningar fundargerð 170. fundar framkvæmdaráðs Eyjafjarðarsveitar.
39. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 452 - 2605005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 452. fundar Skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar.
40. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 453 - 2606004F
Lögð fram til kynningar fundargerð 453. fundar Skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar.
16.06.2026
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.