Fundarboð 680. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

FUNDARBOÐ
680. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 20. ágúst 2026 og hefst kl. 08:00.


Dagskrá:

Almenn erindi


1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Fyrir fundinum liggja uppfærð gögn vegna endurskoðunar Aðalskipulags
Eyjafjarðarsveitar. Málið var síðast tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 18. júní 2026, þar
sem fjallað var um athugasemdir HMS við tillöguna og jafnframt gerðar athugasemdir
samkvæmt minnispunktum skipulagsnefndar við greinargerð og yfirferð HMS.
Skipulagshönnuði var þá falið að vinna úr framkomnum athugasemdum. Fyrirliggjandi
gögn hafa nú verið uppfærð í samræmi við þær.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að uppfærð tillaga að Aðalskipulagi
Eyjafjarðarsveitar verði samþykkt og auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


2. Brúarland (ÍB 15) - breytingar á skilgreiningu í ASK og greinargerð DSK - E2501006
Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna
Brúarlands (ÍB15) og breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar Brúnagerðis, áfanga A og
B, lauk 20. júní 2026. Alls bárust 16 athugasemdir á auglýsingartíma um
aðalskipulagsbreytinguna og 15 umsangir um deiliskipulagsbreytinguna og liggja þær nú
fyrir til umfjöllunar.


3. Hótel við skógarböðin - DSK breyting vegna hreinsistöðvar - E2509010
Fyrir fundinum liggja athugasemdir sem bárust við grenndarkynningu breytingar á
deiliskipulagi Ytri-Varðgjár, baðstaðar og hótels vegna staðsetningar hreinsistöðvar.
Grenndarkynning fór fram frá 29. janúar til 27. febrúar 2026. Málið var síðast tekið fyrir
á fundi sveitarstjórnar 30. apríl 2026, þar sem tillagan var samþykkt. Eftir stóð að taka
afstöðu til framkominna athugasemda, sbr. 5.9.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.


4. Hringtorg við Hringveg og Eyjafjarðarbraut eystri - leyfi vegna rannsóknarfyllingar og -borana - E2608003
Vegagerðin sækir um leyfi fyrir jarðvegsrannsóknum vegna hönnunar hringtorgs við
vegamót Hringvegar og Eyjafjarðarbrautar eystri. Sótt er um að setja niður
rannsóknarfyllingu innan hönnunarsvæðis hringtorgs sem standa þarf a.m.k. 1 m yfir
sjávaryfirborði við háflóð og er áætlað efnismagn í hana um 300 m3. Jafnframt er sótt
um að bora í rannsóknarfyllinguna niður á fast undirlag, eða a.m.k. 15 metra niður og
framkvæmda jarðsjármælingu. Óskað hefur verið eftir umsögn Náttúrufræðistofnunar
um áformin.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að leyfi verði veitt vegna fyrirhugaðra
jarðvegsrannsókna við vegamót Hringvegar og Eyjafjarðarbrautar eystri, enda hafa borist
jákvæð viðbrögð frá Náttúrufræðistofnun.


5. Hrafnabjörg L235978 - Breyting á DSK fyrir frístundarhús - E2509029
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing, unnin af Ívari Ragnarssyni, dags. 11.06.2026
vegna skipulagningar frístundasvæðis F6 í landi Höskuldsstaða og Jódísarstaða.
Markmið deiliskipulagsins er m.a. að skipuleggja fimm frístundalóðir á svæðinu og yrði
hver um sig um 10.000 til 21.500 fermetrar að stærð.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi skipulagslýsing verði
samþykkt og kynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


6. Klauf - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - E2608017
Fyrir fundinum liggur umsókn um stöðuleyfi fyrir 360 m² tjaldskemmu á jörðinni Klauf
L152678. Samkvæmt umsókn er fyrirhuguð staðsetning um 80 m frá næstu
landamerkjum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt og felur
byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi til eins árs fyrir tjaldskemmunni í samræmi við
fyrirliggjandi gögn.


7. Skólatröð 13 L240619 - beiðni um staðsetningu smáhýsis við lóðamörk - E2608018
Jóhann Freyr Jónsson sækir um að fá að staðsetja 15 fermetra smáhýsi á lóðarmörkum
Skólatraðar 13 sbr. meðfylgjandi tölvupóst og afstöðumynd.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt.


8. Syðra-Laugaland - merkjalýsing vegna hnitsetningar skika - E2607001
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing, dags. 15.06.2026, vegna skika innan jarðarinnar
Syðra-Laugalands, L152790. Í merkjalýsingunni felst að afmarkaður og hnitsettur er
2.100 m² skiki innan jarðarinnar en innan skikans eru mhl 05 fjárhús, mhl 08 hlaða og
mhl 13 kálfahús. Sótt er um að staðfang nýja landskikans verði Syðra-Laugaland 3.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða
merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr.
160/2024. Jafnframt leggur nefndin til að nýr landskiki fái staðfangið Syðra-Laugaland
3. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við landeiganda um aðkomu í
tengslum við merkjalýsingu.


9. Þjóðlendan Laugafell L237821 - afmörkun lóðar undir skálabyggingar - E2606017
Lögð fyrir merkjalýsing þar sem verið er að stofna nýja 2,90 ha lóð, Laugafell
(L241709) úr þjóðlendunni Laugafelli (L237821) en innan marka hinnar nýju lóðar eru 4
mannvirki/skálar Ferðafélags Akureyrar. Þessu samhliða breytist staðfang þjóðlendunnar
Laugafells (L237821) í "Fjöllin austur" svo ekki séu tvær fasteignir innan
sveitarfélagsins með sama staðfang. Jafnframt fylgir forathugun vegna skipulags og
lóðarstofnunar við Laugafell en skv. 10 gr. laga nrþ. 100/2021 skal fara fram forathugun
áður en tekin er ákvörðun um að auglýsa sérleyfis- eða rekstrarsamninga.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða
merkjalýsingu með fyrirvara um undirskrift Ríkissjóður Íslands og að hún verði
samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Í framhaldinu verði
send beiðni til ráðuneytisins um stofnun nýrrar lóðar.


10. Umsagnarbeiðni - Vaðlaborgir B - Íbúðarsvæði deiliskipulag - Kynning tillögu á vinnslustigi - E2606018
Erindi dagsett 9.06.2026 þar sem Svalbarðsstrandarhreppur óskar eftir umsögn er varðar
Vaðlaborgir B - Íbúðarsvæði deiliskipulag, nr. 1123/2025: Kynning tillögu á vinnslustigi
(Nýtt deiliskipulag).
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við
fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Vaðlaborga B. Nefndin leggur þó til að horft verði
til þess möguleika að tengja íbúasvæðin með göngustíg.


11. Samtök um dýravelferð á Íslandi - erindi um bann við loðdýrarækt í aðalskipulagi - E2608012
Lagt fram erindi frá Samtökum um dýravelferð á Íslandi þar sem íslensk sveitarfélög eru
hvött til þess að banna loðdýrarækt innan sveitarfélags í Aðalskipulagi.


12. Leifsstaðir II - Hotel North - Umsagnarbeiðni vegna breytingu á gildu rekstrarleyfi - 2503011
Leifsstaðir II - Hotel North - Umsagnarbeiðni vegna breytingu á gildu rekstrarleyfi


13. Ungmennaráð - Erindisbréf, endurskoðun - E2603031
Lagt fram til samþykktar endurskoðað erindisbréf Ungmennaráðs og tilnefning í ráðið.


14. Skipan í nefndir og ráð 2026-2030 - E2605039
Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir, ráð, samstarfshópa og stjórnir.


15. Reiðvegur-Brúnir - E2608022
Fyrir liggur erindi frá reiðveganefnd Funa þar sem óskað er eftir að Eyjafjarðarsveit taki
á sig viðbótarkostnað vegna breyttrar útfærslu reiðleiðar frá Eyjafjarðarbraut Eystri að
hitaveituvegi. Áætlaður kostnaður er 2-5 m.kr.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að veittur verði aukastyrkur upp á 2 m.kr. til
reiðvegagerðar á árinu 2026 vegna sérstakra aðstæðna.


16. Vegagerðin - Tilkynning um niðurfellingu Syðra-Laugalandsvegar 8429-01 af vegaskrá - E2606028
Fyrir liggur tilkynning Vegagerðarinnar um fyrirhugaða niðurfellingu Syðra-
Laugalandsvegar 8429-01 af vegaskrá, þar sem ekki er lengur búseta að Syðra-
Laugalandi 2. Vegagerðin hyggst fella veginn af vegaskrá frá næstu áramótum og mun
viðhald og þjónusta hans þá ekki lengur vera á ábyrgð stofnunarinnar.
Málið er lagt fyrir sveitarstjórn til umfjöllunar.


17. Vegagerðin - Tilkynning um niðurfellingu Sölvadalsvegar 827-01 af vegaskrá - E2606029
Fyrir liggur tilkynning Vegagerðarinnar um fyrirhugaða niðurfellingu Sölvadalsvegar
827-01 af vegaskrá, þar sem ekki er lengur búseta á Þormóðsstöðum og Þormóðsstöðum
II. Vegagerðin hyggst fella veginn af vegaskrá frá næstu áramótum og mun viðhald og
þjónusta hans þá ekki lengur vera á ábyrgð stofnunarinnar.
Málið er lagt fyrir sveitarstjórn til umfjöllunar.


18. Vináttuheimsókn - E2608008
Lagt er fram erindi frá Gunnari Má Gunnarssyni, formanni bæjarstjórnar
Akureyrarbæjar, þar sem kannaður er áhugi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar á að taka á
móti bæjarstjórn Akureyrarbæjar í vináttuheimsókn.
Tilgangur heimsóknarinnar er að sveitarstjórnarfólk sveitarfélaganna hittist og kynnist,
auk þess sem tækifærið verði nýtt til umræðu um sameiginlega hagsmuni
sveitarfélaganna, meðal annars fyrirhugaða þróunaráætlun fyrir borgarsvæði Akureyrar.


19. LEB - Öldungaráð sveitarfélaga - E2606036
Lagt fram til kynningar erindi frá Landssambandi eldri borgara (LEB) varðandi skipun
öldungaráða og mikilvægi virks samráðs sveitarfélaga við eldra fólk. Í erindinu er meðal
annars minnt á lögbundið hlutverk öldungaráða samkvæmt lögum um málefni aldraðra
og mikilvægi þess að skapa skýran ramma um starfsemi þeirra og aðkomu að
ákvörðunum sveitarfélaga.


20. Innviðaráðuneytið - Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga - E2608027
Lagt fram til kynningar erindi frá Innviðaráðuneytinu sem býður kjörnum fulltrúum og
starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufundar um hinsegin málefni. Samtökin ´78 sjá um
fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri
stöðu hinsegin fólks.


21. Innviðaráðuneytið - Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga, gerð grænbókar - E2607013
Erindi frá Innviðaráðuneytinu vegna endurskoðunar stefnumótandi áætlunar í málefnum
sveitarfélaga. Ráðuneytið óskar eftir upplýsingum frá sveitarfélögum vegna gerðar
grænbókar um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins. Frestur til að skila
svörum er til 21. september 2026.


22. Atvinnuvegaráðuneytið - Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár - E2607017
Erindi frá Atvinnuvegaráðuneytinu vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár. Í erindinu eru
sveitarfélög hvött til að yfirfara afréttarskrár og fjallskilasamþykktir, skoða möguleika á
samstarfi sveitarfélaga og nýta þær heimildir sem lög um búfjárhald og fjallskil veita við
úrlausn mála vegna ágangsfjár.


23. UMF Samherjar - ARENA fótboltavellir - E2608026


24. Umhverfis og orkustofnun - Upplýsingar um nýjar framkvæmdir og sjálfbær umsvif í vatnaáætlun 2028-2033 - E2607014
Erindi frá Umhverfis- og orkustofnun vegna endurskoðunar vatnaáætlunar fyrir tímabilið
2028?2033. Óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum um fyrirhugaðar
framkvæmdir og sjálfbær umsvif sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og
umhverfismarkmið þeirra. Skilafrestur upplýsinga er til og með 30. september 2026.


25. SSNE - Haustþing 2026 - E2607012
Stjórn SSNE boðar til haustþings SSNE miðvikudaginn 9. september næstkomandi.
Þingið verður haldið í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík og verður sett kl. 11:30 og mun
formlegri dagskrá ljúka kl. 17:00.


26. SSNE - Samþykki fyrir þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga - E2607011
Erindi frá SSNE vegna verkefnisins "Rafrænt og sjálfvirkt losunarbókhald fyrir rekstur
sveitarfélaga innan SSNE" er hluti af gildandi sóknaráætlun og loftslagsstefnu
landshlutans.


27. Tilnefning fulltrúa í fjölmenningarráð SSNE - E2608016
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) óska eftir
tilnefningu fulltrúa frá sveitarfélagi ykkar í fjölmenningarráð SSNE fyrir komandi
kjörtímabil.


Fundargerðir til kynningar

28. Hættumatsnefnd Eyjafjarðarsveitar - fundargerð 9. fundar - E2606023
Lögð fram til kynningar fundargerð 9. fundar hættumatsnefnd Eyjafjarðarsveitar.


29. Norðurorka - Fundargerð 324. fundar - E2606024
Lögð fram til kynningar fundargerð 324. fundar stjórnar Norðurorku.


30. HNE - Fundargerð 248 - E2606025
Lögð fram til kynningar fundargerð 248. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.


31. HNE - Fundargerð 249 - E2606026
Lögð fram til kynningar fundargerð 249. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.


32. HNE - Fundargerð 250 - E2608005
Lögð fram til kynningar fundargerð 250. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.


33. Greið leið ehf. - Aðalfundur 9.06.2026 - E2605031
Lögð er fram fundargerð aðalfundar Greiðrar leiðar ehf., sem haldinn var 9. júní 2026. Á
var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum tillaga stjórnar um að félagið yrði tekið til
slita á grundvelli XIII. kafla laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög.
Auk þess var farið yfir skýrslu stjórnar og ársreikning félagsins fyrir árið 2025, auk þess
sem stjórn og endurskoðandi félagsins voru kjörin.


34. Greið leið ehf. - hluthafafundur 9.06.2026 - E2605032
Stjórn Greiðrar leiðar ehf. samþykkti að leggja til við hluthafafund að félagið yrði tekið
til slita. Á hluthafafundi félagsins 9. júní 2026 var ársreikningur 2025 lagður fram ásamt
álitsgerð endurskoðanda, þar sem fram kom að eignir félagsins hrökkvi fyrir skuldum.
Hluthafafundur samþykkti jafnframt kosningu skilanefndar og að tilkynna
hlutafélagaskrá um slit félagsins. Samkvæmt ársreikningi nam eigið fé félagsins 21,6
m.kr. í árslok 2025 og kom fram í álitsgerð endurskoðanda að eignir félagsins hrökkvi
fyrir skuldum.
Á fundinum var jafnframt samþykkt að kjósa Jónas Rafn Tómasson og Albertínu
Friðbjörgu Elíasdóttur í skilanefnd félagsins. Skilanefnd var falið að tilkynna
hlutafélagaskrá um slit félagsins og óska löggildingar til skilanefndarstarfa í samræmi
við 3. mgr. 86. gr. laga um einkahlutafélög.


35. SSNE - Fundargerð 84. stjórnarfundar - E2607015
Lögð fram til kynningar fundargerð 84. fundar stjórnar SSNE.


36. SSNE - Fundargerð 85. stjórnarfundar - E2608024


37. Fjallskilanefnd Eyjafjarðarsveitar - 51 - 2608001F
Lagt fram til kynningar 51. fundur fjallskilanefndar.


38. Framkvæmdaráð - 171 - 2608008F
Lagt fram til kynningar 171. fundur framkvæmdaráðs.


39. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 454 - 2608003F
Lagt fram til kynningar 454. fundur skipulagsnefndar.



17.08.2026
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.