Fundarboð 681. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

FUNDARBOÐ
681. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 3. september 2026 og hefst kl. 08:00.


Dagskrá:

Almenn erindi
1. Náttúruhamfaratrygging Íslands - Áminning um ákvæði 16. gr. laga nr. 55, 1992 - E2608054
Náttúruhamfaratrygging Íslands sendir sveitarstjórnun á Íslandi bréf þar sem hún beinir
sjónum sínum að vaxandi tjónum á nýlegum mannvirkjum á þekktum flóðasvæðum og
talsverðrar umræðu um enn frekari framkvæmdir á slíkum svæðum.

2. Skipan í nefndir og ráð 2026-2030 - E2605039
Sveitarstjórn á eftir að skipa aðalmann í skólanefnd Tónlistarskóla Eyjafjarðar og skipa í öldungaráð.

3. Syðra-laugaland 2 L236505 - umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi gistingar - E2607024
Lögð er fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi eystra vegna umsóknar SL2
ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-D, að Prestsetrinu, Syðra-Laugalandi 2.
Sótt er um leyfi fyrir að hámarki 28 gesti.
Óskað er umsagnar sveitarfélagsins vegna umsóknarinnar í samræmi við lög nr. 85/2007
um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og reglugerð nr. 1277/2016.

4. Samningur við Bergið Headspace - E2606033
Lagður er fram til afgreiðslu sveitarstjórnar samstarfssamningur sveitarfélaga á
Norðurlandi eystra við Bergið Headspace um stuðnings- og ráðgjafarþjónustu fyrir ungt
fólk á aldrinum 12?25 ára. Markmið samningsins er meðal annars að efla aðgengi ungs
fólks að stuðningi og ráðgjöf, styrkja lágþröskulda geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu og
stuðla að snemmtækri íhlutun og forvörnum.
Samningurinn gildir frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029. Fjárframlag Eyjafjarðarsveitar
samkvæmt samningnum nemur 194.504 kr. fyrsta samningsárið, 213.206 kr. annað árið
og 231.909 kr. þriðja árið.
Samningurinn er lagður fyrir sveitarstjórn til samþykktar.

5. NorðurOrg 2027 - E2608041
Fyrir fundinum liggur erindi frá félagsmiðstöðvum Eyjafjarðarsveitar, Hörgársveitar og
Grýtubakkahrepps þar sem óskað er eftir gjaldfrjálsum afnotum af íþróttahúsi vegna
NorðurOrg 2027, forkeppni Söngkeppni Samfés á Norðurlandi. Fyrirhugað er að
viðburðurinn fari fram föstudaginn 12. mars 2027 og er gert ráð fyrir um 500?600
þátttakendum, gestum og starfsfólki. Jafnframt kemur fram að undirbúningur og
framkvæmd viðburðarins muni hafa áhrif á hefðbundna starfsemi í íþróttamiðstöðinni
dagana 11.?13. mars.

6. Ástandsskoðun og framtíð gamla Þinghússins - E2608020
Lögð fram til kynningar ástandsskoðun gamla Þinghússins sem framkvæmd var af EFLU í ágúst 2026.

7. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027-2028 - E2605022
Skrifstofu- og fjármálastjóri fer yfir komandi fjárhagsáætlunarvinnu.


Fundargerðir til kynningar

8. Norðurorka - Fundargerð 325. fundar - E2608048
Lögð fram til kynningar fundargerð 325. fundar stjórnar Norðurorku.

9. SSNE - Fundargerð 7 Farsældarráðs Norðurlands eystra - E2608030
Lögð fram til kynningar fundargerð 7. fundar farsældarráðs Norðurlands eystra.

10. Fjallskilanefnd Eyjafjarðarsveitar - 52 - 2608015F
Fundargerð 52. fundar fjallskilanefndar lögð fram til kynningar.

11. Framkvæmdaráð - 172 - 2608017F
Fundargerð 172. fundar framkvæmdaráðs lögð fram til kynningar.


31.08.2026
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.