FUNDARBOÐ
682. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitarverður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 17. september 2026 og hefst kl. 08:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Erindi vegna breytinga á farvegi Eyjafjarðarár á móti Grund - E2609030
Tekið fyrir erindi frá Ljósaborg ehf. vegna framkvæmda í Eyjafjarðará sem hafa leitt til breytinga á farvegi hennar.
Skipulagsnefnd bendir á að ekki er efnistökusvæði í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar á umræddu framkvæmdasvæði og ekki er í gildi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að fara fram á
það við framkvæmdaraðila að kvísl árinnar sem hefur verið lokað verði opnuð aftur svo
áin geti runnið aftur eftir fyrri farvegi. Skipulagsfulltrúi hefur rætt við hlutaðeiganda sem
hefur brugðist við og opnað kvíslina að hluta, einnig er skipulagsfulltrúa falið að fylgjast
áfram með málinu.
2. Þórustaðir 2 L152852 - fyrirspurn um breytta landnotkun í endurskoðun aðalskipulags - E2609026
Teknar fyrir tillögur frá eigendum Þórustaða 2 L152852 um breytta landnotkun á
jörðinni við endurskoðun Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar. Tillögurnar voru upphaflega
sendar í lok síðasta árs en hafa ekki verið teknar til umfjöllunar fyrr en nú.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að áform um uppbyggingu íbúðar- og
frístundabyggðar á Þórustöðum 2 verði hafnað enda hefur það verið stefna í gildandi og
endurskoðuðu aðalskipulagi að beina uppbyggingu á þegar skilgreind íbúðar- og
frístundasvæði sem eru talin uppfylla þörf um uppbyggingu á skipulagstímabilinu.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að 9,4 ha svæðið sem sótt er um að
landnotkun verði breytt úr landbúnaðarsvæði í skógræktar- og landgræðslusvæði verði
samþykkt. Skipulagsnefnd leggur jafnframt til að beiðni um að 19,3 ha svæði í
Þórustaðamýri verði breytt úr landnotkunarflokknum óbyggð svæði (ÓB4) yfir í
landbúnaðarsvæði til kartöfluræktar verði samþykkt. Skipulagshönnuði Aðalskipulagsins
er falið að breyta tillögunni eftir auglýsingu miðað við ofangreint.
3. Grænahlíð L152615 - umsókn um efnistöku af svæði E4 - E2608037
Dalanaut ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til efnistöku 20.000 m³ af efni til eigin nota af
efnistökusvæði E4 í Aðalskipulagi sbr. meðfylgjandi umsókn og kort af svæðinu.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt til efnistöku
20.000 m³ af efni á svæði E4 úr áreyrum Eyjafjarðarár. Sem minnst verði unnið í sjálfum
farvegi árinnar og slíkt ekki heimilað frá byrjun maí til loka október. Skipulagsfulltrúa er
falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar
nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi þegar umbeðnar umsagnir liggja fyrir.
4. Ytri-Varðgjá - framkvæmdaleyfi vegna efnistöku - E2604047
Fyrir fundinum liggur að nýju umsókn Finns ehf. um framkvæmdaleyfi til 15.000 m³
efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Ytri-Varðgjár. Málið var síðast til umfjöllunar á fundi
sveitarstjórnar 18. júní 2026, þar sem afgreiðslu erindisins var frestað og
skipulagsfulltrúa falið að óska umsagna Náttúruverndarstofnunar, Umhverfis- og
orkustofnunar og Óshólmanefndar. Erindið var í kjölfarið grenndarkynnt á tímabilinu 15.
júlí til 31. ágúst 2026 og bárust alls fimm umsagnir á kynningartímanum sem nú liggja
fyrir til umfjöllunar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsókn um framkvæmdaleyfi til 15.000 m³
af efni úr Eyjafjarðará í landi Ytri-Varðgjár verði hafnað. Framkvæmdasvæðið er innan
svæðis nr. 510 á náttúruminjaskrá og á hverfisverndarsvæði. Leirurnar njóta sérstakrar
verndar samkvæmt 61. gr. náttúruverndarlaga, nr. 60/2013 og skv. þeim ber að forðast að
raska vistkerfum nema brýna nauðsyn beri til. Skipulagsnefnd vísar því til sveitarstjórnar
að farið verði í heildstæða endurskoðun á takmörkunum á efnistöku á svæðinu í ljósi
breytinga á svæðinu.
5. Lækkun hraða á Knarrarbergs- og Leifsstaðavegi - E2609028
Fjallað um hugmyndir sveitarfélagsins um að lækka hámarkshraða úr 70 km/klst í 50
km/klst á Knarrarbergsvegi, frá gatnamótum Veigastaðavegar, og Leifsstaðavegi.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að fara fram á við Vegagerðina að
hámarkshraði verði lækkaður úr 70 í 50 km/klst á Knarrarbergsvegi og Leifstaðarvegi.
6. Jódísartún - Merkjalýsing lóða - E2604045
Fyrir fundinum liggur að nýju merkjalýsing vegna lóða nr. 1-6 og 9-10 við Jódísartún,
þar sem gerð er grein fyrir afmörkun lóðanna til samræmis við stofnskjal og samþykkt
deiliskipulag svæðisins. Málið var síðast tekið fyrir á 453. fundi skipulagsnefndar þann
15.06.2026 þar sem afgreiðslu var frestað og óskað eftir frekari upplýsingum frá
merkjalýsanda.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða
merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr.
160/2024.
7. Höskuldsstaðir land L186707 og Höskuldsstaðir land L186708 - sameining landareigna - merkjalýsing - E2607007
Tekin fyrir merkjalýsing unnin af Þórhalli Ragnarssyni þar sem verið er að sameina
landeignirnar Höskuldsstaði land L186707 og Höskuldsstaði land L186708. Sótt er um
að hin sameinaða landeign fái staðfangið Drekasteinn.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða
merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr.
160/2024. Jafnframt samþykkir nefndin að sameinaður landskiki fái staðfangið
Drekasteinn. Skipulagsnefnd bendir þó á að í endurskoðuðu Aðalskipulagi
Eyjafjararðsveitar sem nú er í auglýsingu er landnotkun umræddar landeignar breytt úr
frístundasvæði F7 í landbúnaðarsvæði að ósk landeiganda.
8. Fellshlíð L152593 - merkjalýsing lóðar - E2609018
Lögð fram merkjalýsing dags. 20.08.2026 þar sem verið er að afmarka nýja 12.176,3 m²
lóð á jörðinni Fellshlíð L152593 en innan lóðarinnar yrðu íbúðarhús byggt 1948 (mhl.
02) og íbúðarhús viðbygging byggð 1979 (mhl. 16). Lagt er til að nýja lóðin fái
staðfangið Fellshlíð 2.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða
merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr.
160/2024. Jafnframt samþykkir nefndin að nýja lóðin fái staðfangið Fellshlíð 2.
9. Erindisbréf - Skólanefnd - E2608042
Erindisbréf skólanefndar var lagt fram til kynningar fyrir nýskipaða skólanefnd. Við
yfirferð þess kom fram að bréfið er frá árinu 2018 og hefur því ekki verið endurskoðað
um nokkurt skeið.
Skólanefnd beinir því til sveitarstjórnar að erindisbréf nefndarinnar verði tekið til
heildstæðrar endurskoðunar og uppfært til samræmis við gildandi laga- og
reglugerðarumhverfi, aðalnámskrár og núverandi starfshætti Eyjafjarðarsveitar.
10. Hrafnagilsskóli - Akstursáætlun 2026-2027 - E2608047
Lögð fram akstursáætlun Hrafnagilsskóla fyrir skólaárið 2026-2027 þar sem fram kemur
fyrirkomulag skólaaksturs og akstursleiðir fyrir nemendur skólans. Skólanefnd leggur til
við sveitarstjórn að akstursáætlun Hrafnagilsskóla fyrir skólaárið 2026?2027 verði
samþykkt.
11. Ungmennaráð - Almenningssamgöngur til Akureyrar - E2605004
Velferðar- og menningarnefnd tók til umfjöllunar erindi Ungmennaráðs
Eyjafjarðarsveitar um almenningssamgöngur fyrir ungmenni úr Hrafnagilshverfi sem
sækja nám í Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að skoðaðar verði leiðir til að bæta
samgöngur fyrir ungmenni. Nefndin fór yfir fyrirliggjandi tilboð frá SBA um akstur á
leiðinni og ræddi mögulegt fyrirkomulag þjónustunnar.
Velferðar- og menningarnefnd vísar erindinu til sveitarstjórnar til nánari útfærslu með
tilliti til fjármögnunar.
12. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030 - E2605022
Staða við vinnu við fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.
13. Norðurorka - Erindi vegna lántöku 2026 - E2609032
Fundargerðir til kynningar
14. SSNE - Fundargerð 8 Farsældarráðs Norðurlands eystra - Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða - E2609037
Lögð fram til kynningar fundargerð 8. fudar farsældarráðs Norðurlands eystra - sem og
áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða.
15. Tónlistarskóli Eyjafjarðar - Fundargerð 154. fundar skólanefndar - E2609015
Fundargerð 154. fundar skólanefndar Tónlistarskóla Eyjafjarðar lögð fram til kynningar.
16. Molta - 118. stjórnarfundur - E2609035
Fundargerð 118. fundar stjórnar Moltu lögð fram til kynningar.
17. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 1001 - E2609021
Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til
kynningar.
18. Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 285 - 2608021F
Fundargerð 285. fundar skólanefndar lögð fram til kynningar.
19. Velferðar- og menningarnefnd - 23 - 2609001F
Fundargerð 23. fundar velferðar- og menningarnefndar lögð fram til kynningar.
15.09.2026
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.