Fundarboð 683. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

FUNDARBOÐ

683. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 1. október 2026 og hefst kl. 08:00.

Dagskrá:

Almenn erindi

1. Stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga - E2609064

Eyjafjarðarsveit hefur haft frumkvæði að því að kanna grundvöll fyrir stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga, að fyrirmynd sambærilegra hagsmunasamtaka sveitarfélaga.

Markmið samtakanna yrði að skapa sameiginlegan vettvang sveitarfélaga þar sem landbúnaður er mikilvægur þáttur í atvinnulífi og samfélagsgerð. Samtökin myndu vinna að sameiginlegri hagsmunagæslu sveitarfélaganna í málefnum sem tengjast landbúnaði, svo sem skipulagsmálum, tekjustofnum, laga- og reglugerðarumhverfi og samskiptum við bændur og ríkisvaldið.

Þreifingar hafa þegar farið fram meðal sveitarfélaga og hafa viðbrögð verið jákvæð, en nokkur sveitarfélög hafa lýst vilja til þátttöku. Málið er lagt fyrir sveitarstjórn til umræðu um áframhaldandi undirbúning og næstu skref.

2. Samband íslenskra sveitarfélaga - Notendaráð sveitarfélaga - E2609029

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur í upphafi nýs kjörtímabils minnt sveitarfélög á mikilvægi þess að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga, þ.e. samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð.

Jafnframt er vakin athygli á mikilvægi þess að sveitarfélög fari yfir samþykktir og erindisbréf ráðanna og tryggi að skipan þeirra og starfsemi sé í samræmi við þau lagalegu skilyrði sem um ráðin gilda.

Erindið lagt fram til kynningar og umræðu.

3. VR, LÍV og FF - Fyrirspurn til sveitarstjórnar - E2609042

Lagt fram erindi frá formönnum VR, Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins, fyrir hönd Fagfélaganna, þar sem óskað er eftir upplýsingum um aðgerðir sveitarfélaga til að styðja við markmið kjarasamninga frá árinu 2024 um verðstöðugleika og bættan kaupmátt heimila.

Í erindinu er sérstaklega óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til gjaldskrárhækkana, framboðs og uppbyggingar íbúðarhúsnæðis, aðgerða til að brúa bil milli fæðingarorlofs og leikskóla og annarra aðgerða sem geti dregið úr kostnaðarhækkunum heimila.

4. SGS - Þjóðarsátt um verðstöðugleika - E2609049

Lagt fram erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands þar sem sveitarfélög landsins eru hvött til þátttöku í sameiginlegu átaki um verðstöðugleika.

Í erindinu er lagt til að ríki, sveitarfélög, atvinnulíf og aðrir sem áhrif hafa á verðmyndun skuldbindi sig til að halda aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum og miða við að þær verði ekki umfram 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.

Jafnframt er óskað eftir skriflegri afstöðu Eyjafjarðarsveitar til þess hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í slíku átaki og tryggja að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki umfram framangreind mörk.

5. Ungmennaráð - umsóknir 2026 og tilnefningar skóla og UMF Samherja - E2609014

Lagðar fram tilnefningar fulltrúa í ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar.

Frá Hrafnagilsskóla eru tilnefnd:

  • Aldís Hekla Jóhannesdóttir, aðalfulltrúi 9. bekkjar til tveggja ára, og Einar Hjalti Steingrímsson, varafulltrúi.

  • Halldór Ingi Guðmundsson, aðalfulltrúi 10. bekkjar til eins árs, og Ísak Ari Aronsson, varafulltrúi.

Frá UMF Samherjum eru tilnefndar til tveggja ára:

  • Kristín Harpa Friðriksdóttir, aðalfulltrúi, og Ragnheiður Birta Hákonardóttir, varafulltrúi.

Af hálfu Eyjafjarðarsveitar eru tilnefnd til tveggja ára:

  • Haukur Skúli Óttarsson og Heiðrún Jónsdóttir sem aðalfulltrúar.

  • Sara Dögg Sindradóttir og Teitur Baldursson sem varafulltrúar.

6. Stefnumótun UMF Samherja 2026-2027 - Ósk um samstarf og fjárstuðning - E2609062

Lagt fram erindi frá Ungmennafélaginu Samherjum þar sem óskað er eftir samstarfi Eyjafjarðarsveitar vegna stefnumótunar félagsins fyrir árin 2026–2027.

7. Norðurorka - Erindi vegna lántöku 2026 - E2609032

Lagt fram að nýju erindi Norðurorku hf. þar sem óskað er eftir að eigendur félagsins veiti einfalda ábyrgð vegna allt að 300.000.000 kr. lántöku félagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir í hitaveitu og fráveitu.

Sveitarstjórn frestaði erindinu á 682. fundi sínum og fól sveitarstjóra og oddvita að funda með verðandi stjórnarformanni stjórnar og framkvæmdarstjóra Norðurorku hf.

8. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030 - E2605022

Fjármálastjóri fór yfir stöðu vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027. Rætt var um helstu verkefni fram undan við áætlunargerðina, þar á meðal undirbúning fjárfestingaráætlunar og forgangsröðun framkvæmda.

Framkvæmdaráð hefur óskað eftir tillögum frá forstöðumönnum sveitarfélagsins vegna vinnu við fjárhagsáætlun ársins, meðal annars varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir, viðhaldsverkefni og aðrar fjárfestingar.

9. Markaðsstofa Norðurlands - Framlag sveitarfélagsins næstu þrjú árin (2027-2029) - E2609055

Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands þar sem óskað er eftir áframhaldandi fjárhagslegum stuðningi Eyjafjarðarsveitar við Flugklasann Air 66N.

Í erindinu er farið yfir þróun beins millilandaflugs um Akureyrarflugvöll, þann árangur sem verkefnið hefur skilað og mikilvægi þess fyrir ferðaþjónustu, atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun á Norðurlandi. Jafnframt kemur fram að óvissa ríki um áframhaldandi fjármögnun verkefnisins af hálfu ríkisins.

Markaðsstofa Norðurlands óskar eftir stuðningi sveitarfélagsins að fjárhæð 500 kr. á hvern íbúa á ári árin 2027–2029.


Fundargerðir til kynningar

10. Markaðsstofa Norðurlands - fundargerð stjórnar 28.08.26 - E2609041

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Markaðsstofu Norðurlands frá fundi sem haldinn var föstudaginn 28. ágúst 2026.

11. HNE - Fundargerð 251 - E2609048

Lögð fram til kynningar fundargerð 251. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.

12. Molta - 117. stjórnarfundur - E2609051

Lögð fram til kynningar fundargerð 117. fundar stjórnar Moltu, sem haldinn var þann 28. apríl 2026.

13. Molta - Aðalfundur 23. september 2026 - E2609059

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Moltu ehf., sem haldinn var miðvikudaginn 23. september 2026.

Á fundinum var meðal annars farið yfir skýrslu stjórnar og ársreikning félagsins fyrir árið 2025. Fram kom að rekstrartekjur námu 163 m.kr., hagnaður ársins 6,7 m.kr. og eiginfjárhlutfall 62,5%. Jafnframt var fjallað um aukið innvegið magn, gæði hráefnis, flokkun matarleifa og fyrirhugaðar breytingar á vinnufyrirkomulagi félagsins.

14. SSNE - Fundargerð 86. stjórnarfundar - E2609050

Lögð fram til kynningar fundargerð 86. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE).

15. SSNE - Haustþing 2026 - E2607012

Lögð fram til kynningar þinggerð Haustþings Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), sem haldið var 4. september 2026.

16. Framkvæmdaráð - 173 - 2609011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 173. fundar framkvæmdaráðs.

17. Velferðar- og menningarnefnd - 24 - 2609007F

Lögð fram til kynningar fundargerð 24. fundar velferðar- og menningarnefndar.

28.09.2026

Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.