FUNDARBOÐ 685. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

685. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitarverður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 29. október 2026 og hefst kl. 08:00.


Dagskrá:

Almenn erindi

1. Leifsstaðir II L152714 - breyting á aðal- og deiliskipulagi, hótel orlofshús - E2411007
Lagðar fram uppfærðar tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi fyrir Leifsstaði II
vegna uppbyggingar á svæðinu. Upprunalegar tillögur voru auglýstar skv. 31. og 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 í vor þar sem athugasemdir bárust m.a. frá nágrönnum og var
málinu frestað á fundi skipulagsnefndar 27. apríl sl. Með uppfærðum tillögum er komið
til móts við hluta þeirra athugasemda sem bárust við auglýsingu fyrri tillaga, m.a. með
fækkun gistirúma og minnkuðu hámarks-byggingarmagni.
Skipulagsnefnd telur að með uppfærðum skipulagstillögum sé verið að bregðast við þeim
athugasemdum sem bárust við auglýsingu fyrri tillaga með því að minnka umfang
uppbyggingar á svæðinu. Nefndin telur því að ekki sé um breytingu á auglýstum
tillögum í grundvallaratriðum að ræða sbr. 1. mgr. 32. gr og 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010 og þ.a.l. ekki ástæða til að auglýsa tillögurnar aftur skv. 31. og 41. gr. sömu
laga. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að uppfærðar aðal- og
deiliskipulagstillögur fyrir Leifsstaði II verði samþykktar eins og fram kemur í afgreiðslu
nefndarinnar á athugasemdum skv. 32., 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna að gildistöku skipulaganna og senda það til HMS til
staðfestingar.

2. Núpá og Þormóðsstaðaá - beiðni um breytingu á aðalskipulagi vegna vatnsaflsvirkjana - E2604002
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing, dags. 22. október 2026, sem COWI vann fyrir
Arctic Hydro hf. Hún varðar breytingu á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags fyrir tvær
vatnsaflsvirkjanir í Sölvadal og er unnin í framhaldi af afgreiðslu sveitarstjórnar 16. apríl
2026. Þá heimilaði sveitarstjórn málsaðila að vinna skipulagslýsingu skv. 1. mgr. 30. gr.
og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin á aðalskipulagi felst í því að
landnotkun á virkjanasvæðunum verði breytt úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði, þar
sem gert verði ráð fyrir stíflum og lónum. Fyrirhugað er að vinna deiliskipulag fyrir
báðar virkjanir samhliða aðalskipulagsbreytingunni og að framkvæmdirnar fari í
umhverfismat.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagslýsingin verði samþykkt til
kynningar skv. 30. gr. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3. Bringa L152577 - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku á svæði E10 - E2610028
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn frá Bringu ehf. þar sem sótt erum að taka 15.000
rúmmetra af efni á svæði E10 sem er á áreyrum Eyjafjarðarár í landi Bringu.
Reynir Sverrir Sverrisson vék af fundi við þennan lið. Skipulagsnefnd leggur til við
sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku 15.000 rúmmetra af efni á
svæði E10 á áreyrum Eyjafjarðarár í landi Bringu. Efnistaka er ekki heimiluð frá byrjun
maí til loka október né efnistaka úr árfarveginum sjálfum. Skipulagsfulltrúa er falið að
fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr.
772/2012 um framkvæmdarleyfi.

4. Finnastaðaá - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku 2023 - E2302010
Sölvastaðir ehf. óska eftir að fá að framlengja framkvæmdaleyfi til efnistöku úr
Finnastaðaá á svæði E17 sem rennur út 30. október nk. Samkvæmt upplýsingum frá
leyfishafa á eftir að taka 11.719 rúmmetra af efni af þeim 20.500 rúmmetrum sem
framkvæmdaleyfið heimilaði. Óskað er eftir að framlengja leyfið til 1. apríl 2027.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að óskað verði eftir umsögn vegagerðarinnar
vegna athugasemda í fyrri umsögn.

5. Umsagnarbeiðni - Vaðlaborgir B - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2606018
Svalbarðsstrandarhreppur óskar umsagnar sveitarfélagsins á deiliskipulagstillögu fyrir
íbúðarbyggð í Vaðlaborgum B en tillagan er í auglýsingu skv. 1 mgr. 41. gr
skipulagslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 21. nóvember nk. Sveitarstjórn
veitti umsögn um vinnslutillöguna 20. ágúst sl. þar sem ekki voru gerðar athugasemdir
en þó lagt til að kanna möguleikann á að tengja íbúðarsvæðin með göngustíg.
Skipulagsnefnd fagnar því að bætt hafi verið við göngustíg milli íbúðarsvæða í tillöguna
og leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við auglýsta
deiliskipulagstillögu.

6. Syðra-laugaland 2 L236505 - umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi gistingar - E2607024
Tekin fyrir að nýju umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi eystra vegna
umsóknar SL2 ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-D, að Prestssetrinu, Syðra-
Laugalandi 2. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 3. september sl. að afla upplýsinga
um grenndaráhrif vegna fyrirhugaðs reksturs og bárust þrjár athugasemdir frá
nágrönnum.

7. Nýtt fyrirkomulag afsláttarkóða Loftbrúar - E2610044
Umræður um nýtt fyrirkomulag afsláttarkóða Loftbrúar.

8. Endurskoðun stjórnskipulags og erindisbréfa nefnda Eyjafjarðarsveitar - E2610020
Lagt fram til umræðu að hefja heildstæða endurskoðun á nefndaskipan
Eyjafjarðarsveitar, heitum nefnda og erindisbréfum þeirra. Markmið endurskoðunarinnar
er að skýra verksvið og ábyrgð nefnda, samræma verkaskiptingu og uppfæra erindisbréf
með hliðsjón af gildandi lögum og núverandi starfsemi sveitarfélagsins. Jafnframt verði
skipurit sveitarfélagsins uppfært í samræmi við niðurstöður endurskoðunarinnar.

9. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030 - E2605022
Farið yfir stöðu vinnu við fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027 og helstu
breytingar frá síðustu yfirferð.
Lagt var fram tilboð frá Stefnu vegna endurnýjunar á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
Jafnframt liggur fyrir tillaga skólanefndar um að gengið verði að tilboði MSHA frá 18.
mars 2026 vegna ytra mats á Hrafnagilsskóla á árinu 2027.
Áfram verður unnið að yfirferð rekstrar, fjárfestinga og fjármögnunar með áherslu á
ábyrgan rekstur og skýra forgangsröðun verkefna.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun
2028?2030 fer fram á næsta fundi sveitarstjórnar þann 12. nóvember 2026.


Fundargerðir til kynningar

10. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 1004 - E2610033
Lögð fram til kynningar fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

11. Norðurorka - Fundargerð 327. fundar - E2610025
Lögð fram til kynningar fundargerð 327. fundar stjórnar Norðurorku.

12. Norðurorka - Fundargerð 328. fundar - E2610041
Lögð fram til kynningar fundargerð 328. fundar stjórnar Norðurorku.

13. Norðurorka - Fundargerð 329. fundar - E2610042
Lögð fram til kynningar fundargerð 329. fundar stjórnar Norðurorku.

14. Norðurorka - Auka aðalfundur 20.10.2026 - E2610012
Lögð fram til kynningar fundargerð auka aðalfundar Norðurorku haldinn 20. október 2026.

15. SSNE - Fundargerð 87. stjórnarfundar - E2610040
Lögð fram til kynningar fundargerð 87. fundar stjórnar SSNE.

16. Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 286 - 2610010F
Lögð fram til kynningar fundargerð 286. fundar skólanefndar.

17. Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar - 17 - 2610009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 17. fundar ungmennaráðs.

18. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 457 - 2610008F
Lögð fram til kynningar fundargerð 458. fundar skipulagsnefndar.

19. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 458 - 2610013F
Lögð fram til kynningar fundargerð 458. fundar skipulagsnefndar.



26.10.2026
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.