FUNDARBOÐ
686. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 12. nóvember
2026 og hefst kl. 08:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Lögð fram að nýju tillaga að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037, að lokinni
auglýsingu. Tillagan var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var
auglýsingatímabilið frá 25. ágúst til 7. október 2026. Alls bárust 24 umsagnir og
athugasemdir. Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 19. októver sl. þar sem farið var
yfir athugasemdir og viðbrögð við þeim og er nú áframhald á þeirri yfirferð.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra
skipulagstillöguna í samræmi við afgreiðslu innkominna umsagna og athugasemda. Að
lokinni uppfærslu verði tillagan send aftur fyrir nefndina til afgreiðslu.
2. Aðgerðir í aðgerðaáætlun vatnaáætlunar 2028-2033 - E2611011
Erindi frá Umhverfis- og Orkustofnun þar sem óskað er eftir athugsemdum
sveitarfélagsins fyrir 23. nóvember vegna álagsgreiningu vatnshlota.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að sveitastjóra verði falið að vinna í málinu
áfram og niðurstaða kynnt á næsta fundi nefndarinnar.
3. Fyrirspurn vegna gerð vegslóða í landi Tjarna L152812 - E2512022
Lagt fram minnisblað frá fundi sveitarfélagsins og Minjastofnunar Íslands um skemmdir
á fornleifum við Granastaði.
Lagt fram og kynnt. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að verklag við útgáfu
framkvæmdaleyfa verði uppfært þannig að óskað verði umsagnar Minjastofnunar Íslands
áður en endanleg afstaða er tekin til leyfisveitingar á svæðum þar sem minjaskráning
hefur ekki farið fram.
4. Sjöan L152852 - Merkjalýsing - E2606001
Lögð fram merkjalýsing dags. 17.09.2026 unnin af Hákoni Jennssyni þar sem verið er að
afmarka lóðina Sjöuna en lóðin er skv. meðfylgjandi deiliskipulagsbreytingu Þórustaða 2
sem samþykkt var í sveitarstjórn 08.04.2021. Lóðin Sjöan er til í fasteignaskrá og hefur
sama landnúmer og Þórustaðir 2 en með merkjalýsingu þessari er lóðin hnitsett og fær
aðskilið landnúmer. Innan lóðar er einbýli F2160000, mhl.nr. 12.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að dagsetning deiliskipulagsbreytingar í texta
merkjalýsingar og texta uppdráttar verði leiðrétt úr 28.03.2020 yfir í 08.04.2021 en það
er sú dagsetning sem deiliskipulagsbreytingin var samþykkt í sveitarstjórn
Eyjafjarðarsveitar. Jafnframt leggur nefndin til að bætt verði inn kvöð í merkjalýsinguna
um að aðkoma að lóðinni verði tryggð í gegnum landeignina Þórustaði 2 L152852. Að
öðru leyti gerir nefndin ekki athugasemdir við framlagða merkjalýsingu og leggur til að
hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
5. Gamla þinghúsið - framtíðarnotkun - E2611003
Umræður um framtíðarnotkun gamla Þinghússins í Hrafnagilshverfi.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að haldinn verði íbúafundur 24. nóvember kl.
18:00 um framtíðarnotkun gamla Þinghússins og skipulagssvæðisins þar í kring í
Hrafnagilshverfi.
6. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið - járhagslegur stuðningur vegna
áskriftarkostnaðar sem fellur til hjá sveitarfélögum við samræmda grunnskráningu
í þjónustukerfum fyrir stuðnings- og stoðþjónustu - E2611010
Lagt fram erindi frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu vegna fjárhagslegs stuðnings
til sveitarfélaga vegna áskriftarkostnaðar sem fellur til við samræmda grunnskráningu í
þjónustukerfum fyrir stuðnings- og stoðþjónustu.
7. Endurnýjun samnings við Minjasafnið um rekstur Smámunasafns Sverris Hermannssonar - E2609011
Lögð fram afgreiðsla Velferðar- og menningarnefndar vegna endurnýjunar samnings við
Minjasafnið á Akureyri um rekstur sýningar Smámunasafns Sverris Hermannssonar.
Nefndin áréttar fyrri afstöðu sína um mikilvægi langtímasamnings og hvetur
sveitarstjórn til að ljúka samningsgerðinni sem fyrst.
8. UNG Esveit - þróunaráætlun frístunda- og félagsmiðstöðvastarfs - E2610008
Lögð fram afgreiðsla Velferðar- og menningarnefndar frá 26. fundi nefndarinnar vegna
hugmynda að þróun frístunda- og félagsmiðstöðvastarfs í Eyjafjarðarsveit.
Nefndin tók jákvætt í fyrirliggjandi hugmyndir og leggur til við sveitarstjórn að þær
verði samþykktar.
9. Endurskoðun stjórnskipulags og erindisbréfa nefnda Eyjafjarðarsveitar - E2610020
Í framhaldi af ákvörðun sveitarstjórnar um heildstæða endurskoðun á stjórnskipulagi
Eyjafjarðarsveitar, nefndaskipan og erindisbréfum eru lögð fram uppfærð drög að
samþykkt um stjórn Eyjafjarðarsveitar til fyrri umræðu.
Við endurskoðunina hefur verið lögð áhersla á að skýra stjórnskipulag sveitarfélagsins,
verksvið og ábyrgð nefnda og samræma ákvæði samþykktarinnar við fyrirhugaða
nefndaskipan og núverandi starfsemi sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn tekur uppfærð drög að samþykkt um stjórn Eyjafjarðarsveitar til fyrri
umræðu.
10. Framkvæmdir ársins 2027 - E2610031
Lögð fram afgreiðsla Framkvæmdaráðs vegna fyrirhugaðra framkvæmda
Eyjafjarðarsveitar árið 2027 og fjárfestingaráætlunar 2027 og 2028-2030.
Framkvæmdaráð samþykkti fjárfestingaráætlunina fyrir sitt leyti og vísaði henni til
sveitarstjórnar til samþykktar.
11. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030 - E2605022
Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027 ásamt þriggja ára áætlun 2028-2030 er
lögð fram til fyrri umræðu.
Við vinnslu áætlunarinnar hefur verið tekið mið af áætlaðri útkomu ársins 2026 og
uppfærðum forsendum Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir fjárhagsáætlanagerð
sveitarfélaga 2027-2031. Forsendurnar byggja meðal annars á þjóðhagsspá Seðlabanka
Íslands og mati fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Í uppfærðum forsendum er gert ráð fyrir að verðbólga verði 3,6% árið 2027,
launavísitala hækki um 5,0%, hagvöxtur verði 1,9% og atvinnuleysi 5,2%. Þá er gert ráð
fyrir að útsvarsstofn sveitarfélaga hækki um 5,6% frá fyrra ári.
Við gerð fjárhagsáætlunar Eyjafjarðarsveitar er miðað við 5% hækkun launa og
launatengdra gjalda og 3,6% almenna hækkun annars rekstrarkostnaðar, í samræmi við
verðbólguspá. Gert er ráð fyrir að almennar gjaldskrár sveitarfélagsins hækki ekki
umfram 2,5% og að álagningarhlutföll fasteignaskatts verði óbreytt.
Áætlaðar útsvarstekjur ársins 2027 eru um 1.157 m.kr., framlög Jöfnunarsjóðs um 834
m.kr. og fasteignaskattstekjur um 185 m.kr. Áfram verður unnið að yfirferð einstakra
málaflokka, launaáætlunar, fjárfestinga og fjármögnunar fram að síðari umræðu.
Fundargerðir til kynningar
12. HNE - Fundargerð 252 - E2611004
Lögð fram til kynningar fundargerð 252. fundar stjórnar Heilbrigðiseftirlits Norðurlands
eystra ásamt fjárhagsáætlun HNE fyrir árið 2027.
13. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 1005 - E2611007
Lögð fram til kynningar fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
14. Öldungaráð - 6 - 2611001F
Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar öldungaráðs.
15. Velferðar- og menningarnefnd - 26 - 2610021F
Lögð fram til kynningar fundargerð 26. fundar velferðar- og menningarnefndar.
16. Framkvæmdaráð - 174 - 2610019F
Lögð fram til kynningar fundargerð 174. fundar framkvæmdaráðs.
17. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 459 - 2611006F
Lögð fram til kynningar fundargerð 459. fundar skipulagsnefndar.
09.11.2026
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.