Fundarboð 687. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

FUNDARBOÐ
687. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 26. nóvember 2026 og hefst kl. 08:00.


Dagskrá:

Almenn erindi
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Fyrir liggur tillaga að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037, að lokinni auglýsingu. Tillagan var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var auglýsingatímabilið frá 25. ágúst til 7. október 2026. Alls bárust 24 umsagnir og athugasemdir. Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 9. nóvember sl. þar sem skipulagshönnuði var falið að uppfæra tillöguna í samræmi við afgreiðslu nefndarinnar á innkomnum umsögnum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra skipulagstillöguna í samræmi við afgreiðslu innkominna athugasemda og leiðréttinga. Að lokinni uppfærslu verði tillagan send HMS til staðfestingar skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ásamt tillögu fylgir rammahluti aðalskipulags - þróun byggðar í Vaðlaheiði með sem viðauki.


2. Ytri-Varðgjá deiliskipulag íbúðarsvæðis (0623/2023) - E2308016
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi þar sem mælst er til þess að sveitarstjórn afturkalli deiliskipulag íbúðarsvæðis í landi Ytri-Varðgjár, sem öðlaðist gildi með birtingu í Bdeild Stjórnartíðinda 3. júlí 2025, og breyti skipulaginu þannig að það uppfylli ákvæði dliðar 5.3.2.5 gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjórn hefur tekið erindið og fyrri athugasemdir Skipulagsstofnunar til efnislegrar umræðu. Sveitarstjórn telur að ágreiningur málsins lúti fyrst og fremst að efnislegri útfærslu deiliskipulagsins og túlkun og beitingu ákvæðis d-liðar 5.3.2.5 gr. skipulagsreglugerðar, en ekki að formi skipulagsgagnanna sem slíku. Sveitarstjórn fellst því ekki á að um formgalla sé að ræða sem leiði sjálfkrafa til þess að afturkalla beri
gildistöku deiliskipulagsins.
Við afgreiðslu málsins lá fyrir að svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018?2030. Þar er landnotkunin sýnd frá um 20 m fjarlægð ofan Veigastaðavegar og því hefur lengi legið fyrir sú stefnumörkun sveitarfélagsins að íbúðarbyggð á svæðinu geti verið nær veginum en 100 m. Þá eru fjölmörg fordæmi á nærliggjandi svæðum um staðsetningu íbúðar- og frístundahúsa innan 100 m frá Veigastaðavegi, meðal annars á Kotru, Eyrarlandi, í Kotabyggð og í Vaðlaborgum A.
Byggingarreitir þeirra sjö lóða sem um ræðir eru staðsettir í 50 m fjarlægð frá Veigastaðavegi. Sú útfærsla tekur mið af ríkjandi byggðarmynstri og sambærilegum skipulagsákvörðunum á nærliggjandi svæðum. Í greinargerð skipulagsins er fjallað um að ekki verð byggt á þessum lóðum nema undanþága frá fjarlægðarmörkum fáist. Sveitarstjórn telur mikilvægt að sambærileg tilvik fái sambærilega meðferð og að landeigendum sé ekki mismunað án þess að fyrir því standi skýr, málefnaleg og staðbundin rök.
Sveitarstjórn horfir einnig til þess að umferð um Veigastaðaveg er takmörkuð og að hámarkshraði hefur verið lækkaður í 70 km/klst. Í gildi er rammahluti aðalskipulags fyrir þróun byggðar í Vaðlaheiði þar sem jafnframt er gert ráð fyrir að hraði á Veigastaðvegi verði lækkaður í 50 km/klst. þar sem byggð er hvað þéttust og þá í samráði við Vegagerðina.
Við skipulag svæðisins hefur jafnframt verið horft til markmiða gildandi aðalskipulags um vernd ræktanlegs lands og hagkvæma nýtingu lands. Með því að nýta beltið milli 50 og 100 m frá Veigastaðavegi er unnt að draga úr þörf fyrir að taka annað og verðmætara
ræktarland undir íbúðarbyggð. Með vísan til framangreinds telur sveitarstjórn að fyrir liggi málefnaleg og staðbundin skipulagsrök fyrir þeirri lausn sem samþykkt var. Sveitarstjórn telur ekki að fram séu komnar fullnægjandi forsendur til að afturkalla deiliskipulag sem þegar hefur öðlast gildi og telur afturköllun jafnframt verulega íþyngjandi úrræði gagnvart þeim hagsmunum sem þegar hafa myndast á grundvelli skipulagsins. Sveitarstjórn samþykkir því að verða ekki við tilmælum um afturköllun deiliskipulagsins eða birtingu nýrrar auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda um afturköllun þess.
Sveitarstjórn staðfestir fyrri afstöðu sína og stendur við samþykkt deiliskipulagsins og gildistöku þess.
Sveitarstjórn áréttar jafnframt vilja sinn til áframhaldandi samtals við HMS og ráðuneytið um túlkun og framtíðarútfærslu reglna um fjarlægð íbúðar- og frístundahúsa frá stofn- og tengivegum, meðal annars með hliðsjón af staðbundnum aðstæðum, umferðarþunga, umferðarhraða, byggðarmynstri og stefnumörkun sveitarfélaga í aðalskipulagi.


3. Þórustaðir 2 L152852 - fyrirspurn um breytta landnotkun í endurskoðun aðalskipulags - E2609026
Lagt fram erindi frá Jóni Helga Helgasyni þar sem hann óskar eftir frekari rökstuðningi við höfnun sveitarstjórnar á 1,0 ha byggingarlóð í landi Þórustaða 2. á fundi dags. 17.09.2026.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu erindisins verði frestað og formanni skipulagsnefndar ásamt skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda.


4. Áttan L152853 - beiðini um undanþágu frá fjarlægðarmörkum frá vegi - E2611005
Fyrir fundinum liggur erindi frá Landslagi ehf, f.h. landeigenda Áttunnar (L152853).
Óskað er eftir undanþágu frá 100 m fjarlægð íbúðarhúsa frá stofnvegum, skv. d-lið gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013, þannig að þrjú íbúðarhús á íbúðarsvæði ÍB21 verði 80 m frá Eyjafjarðarbraut eystri.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að mælt verði með því við ráðherra að veitt verði undanþága frá d-lið gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 þannig að þrjú íbúðarhús á íbúðarsvæði ÍB21 megi standa allt að 80 m frá Eyjafjarðarbraut eystri.
Skipulagsnefnd bendir þó á að húsnæðisáætlun gefi til kynna að nægilegt magn byggingarheimilda innan deiliskipulaga sé til að anna eftirspurn næstu 10 ára miðað við háspá íbúaþróunar og þannig sé ekki tilefni til að opna á fleiri deiliskipulög á því tímabili.


5. Kotra 10 L230566 - fyrirspurn um aðkomuveg að gestahúsi - E2611029
Lögð fram fyrirspurn frá eiganda Kotru 10 um gerð nýrrar innkeyrslu inn á lóðina sem á að liggja að fyrirhuguðu gestahúsi. Uppdráttur og greinargerð deiliskipulags Kotru fylgja fundargögnum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað þar sem fyrirhuguð vegtenging samræmist ekki gildandi deiliskipulagi Kotru. Nefndin telur ekki æskilegt að breyta deiliskipulaginu þannig að heimilaðar verði tvær vegtengingar að sömu lóð.


6. Djúpasel L205695 - fyrirspurn um breytta skráningu sumarhúss og breytta aðkomu að húsi - E2609043
Til umfjöllunar eru áform eiganda Djúpasels L205695 um að breyta notkun sumarhússins yfir í íbúðarhús. Húsið er á landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi og er landeignin skráð sumarbústaðaland. Landeigandi áformar jafnframt að breyta aðkomu
að Djúpaseli yfir ánna. Húsið er skráð sem sumarbústaður. Það stendur á landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi. Að húsinu er ekki akvegur sem er fær allt árið og óvissa um aðkomu að lóðinni, sbr. meðal annars umsögn Vegagerðarinnar. Breytt notkun sumarbústaðarins í
íbúðarhúsnæði er ekki í samræmi við stefnumörkun aðalskipulags um íbúðabyggð. Eignin stendur nokkuð úr leið. Húsið er ekki í röklegu samhengi við aðra íbúðabyggð á svæðinu, en engin önnur hús eru sömu megin í Djúpadal og engin föst búseta austan Djúpadalsár. Engin áform eru í aðalskipulagi um íbúðabyggð í Djúpadal.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn um að hafnað verði beiðni um að breyta notkun sumarbústaðarins Djúpasel í íbúðarhúsnæði.


7. Opið bréf til sveitarstjórnar frá íbúum í landi Leifsstaða og Brúarlands. - E2602025
Lagt fram erindi frá íbúum, land- og lóðareigendum í landi Leifsstaða og Brúarlands vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar og skipulagsmála á svæðinu.
Í erindinu er vísað til opins bréfs sem sent var sveitarstjórn og Skipulagsnefnd 18. febrúar 2026 og lýst áhyggjum af umfangi fyrirhugaðrar uppbyggingar á Leifsstöðum II og Brúarlandi. Athugasemdir lúta meðal annars að umferðarþunga og ástandi vega, fráveitu og öðrum veitum, umfangi landnotkunar og áhrifum uppbyggingarinnar á nærliggjandi íbúðarbyggð.


8. Girðingamál í kringum Sigtún - E2608004
Lögð fram afgreiðsla Fjallskilanefndar vegna erindis frá Steinari Hauki, Sigtúnum, um sauðfé á túnum og landi við Sigtún.
Fjallskilanefnd ræddi stöðu girðinga á svæðinu og mögulegar úrbætur og vísaði málinu til sveitarstjórnar. Jafnframt hvetur nefndin til þess að boðað verði til fundar með öllum sauðfjárbændum í Eyjafjarðarsveit þar sem farið verði yfir stöðu fjallskila og girðingamála.


9. Íþrótta- og tómstundastyrkur 2027 - E2611031
Lögð fram afgreiðsla Velferðar- og menningarnefndar vegna íþrótta- og tómstundastyrks fyrir árið 2027.
Nefndin fór yfir forsendur styrksins og framkvæmd hans í gegnum Abler/Hvata kerfið á árinu 2026 og leggur til við sveitarstjórn að styrkfjárhæðin verði hækkuð í 65.000 kr. fyrir árið 2027.


10. Lýðheilsustyrkur eldri borgara - E2511012
Lögð fram afgreiðsla Velferðar- og menningarnefndar vegna lýðheilsustyrks Eyjafjarðarsveitar fyrir eldri borgara árið 2027.
Nefndin fór yfir forsendur styrksins og leggur til við sveitarstjórn að fjárhæð lýðheilsustyrks verði hækkuð í 18.500 kr. árið 2027.


11. UMF Samherjar - Tillaga um viðburðarnefnd - E2606009
Lögð fram afgreiðsla Velferðar- og menningarnefndar vegna samantektar frá opnum fundi með félagasamtökum í Eyjafjarðarsveit um viðburðahald, sem haldinn var 18. nóvember 2026.
Á fundinum kom meðal annars fram áhugi á sameiginlegum viðburði eða hátíð að sumri til, aukinni samhæfingu viðburða og bættri upplýsingamiðlun.
Velferðar- og menningarnefnd lýsir yfir ánægju með fundinn og leggur til við sveitarstjórn að gert verði ráð fyrir fjárveitingu til viðburðahalds árið 2027 í samræmi við þær hugmyndir sem fram komu á fundinum.


12. Starfsáætlun öldungaráðs 2026-2030 - E2611001
Lögð fram til kynningar drög að starfsáætlun Öldungaráðs Eyjafjarðarsveitar fyrir tímabilið 2026-2030.
Öldungaráð fór yfir drögin á síðasta fundi sínum. Áætlað er að kynna þau fyrir Félagi eldri borgara í Eyjafjarðarsveit og sveitarstjórn áður en starfsáætlunin verður lögð fyrir ráðið til endanlegrar afgreiðslu. Jafnframt leggur Öldungaráð til við sveitarstjórn að gert verði ráð fyrir fjármunum til heilsueflandi heimsókna í fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.


13. SSNE - Ósk um samstarf vegna verkefnisins Frá mótttöku til inngildingar - E2611021
Lagt fram erindi frá Þekkingarnetinu vegna verkefnisins „Frá móttöku til inngildingar“, þar sem óskað er eftir samstarfi við Eyjafjarðarsveit um framkvæmd verkefnisins.
Markmið verkefnisins er að styðja sveitarfélög á starfssvæði SSNE við að efla móttöku og inngildingu íbúa af erlendum uppruna, meðal annars með skýrara verklagi, aðgengilegri upplýsingagjöf og markvissara upplýsingaflæði.


14. Reglur um afslátt af fasteignaskatti - E2512003
Lagðar fram til umræðu reglur Eyjafjarðarsveitar um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega.
Farið yfir fyrirkomulag afsláttarins og viðmiðunarfjárhæðir vegna álagningar fasteignaskatts árið 2027.


15. Dýraleifagámur - staða og fyrirkomulag - E2611006
Lögð fram afgreiðsla Atvinnu- og umhverfisnefndar vegna fyrirkomulags og reksturs dýraleifagáms í Eyjafjarðarsveit ásamt minnisblaði skrifstofu- og fjármálastjóra.
Atvinnu- og umhverfisnefnd leggur til að gjaldskrá vegna dýraleifagáms verði áfram miðuð við að tekjur af þjónustunni standi undir raunkostnaði við rekstur hennar.


16. Gjaldskrár Eyjafjarðarsveitar 2027 - E2604040
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.
Við gerð fjárhagsáætlunar hefur verið lögð áhersla á að halda gjaldskrárhækkunum í hófi og leggja þannig sitt af mörkum til verðstöðugleika og aðhalds í verðlagsþróun. Almennt er gert ráð fyrir að gjaldskrár sveitarfélagsins hækki að jafnaði um 2,5%, en frá því eru
gerðar undantekningar þar sem kostnaðarþróun og raunkostnaður þjónustunnar kalla á annað.


17. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030 - E2605022
Sveitarstjórn tekur til síðari umræðu fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028- 2030. Nefndir sveitarfélagsins hafa fjallað um fjárhagsáætlunina, fengið kynningu og eftir atvikum komið með tillögur að gjaldskrárhækkunum eða breytingum á rekstri.


18. Endurskoðun stjórnskipulags og erindisbréfa nefnda Eyjafjarðarsveitar - E2610020
Lögð fram til síðari umræðu uppfærð drög að samþykkt um stjórn Eyjafjarðarsveitar í framhaldi af endurskoðun á stjórnskipulagi sveitarfélagsins, nefndaskipan og erindisbréfum nefnda.
Við endurskoðunina hefur verið lögð áhersla á að skýra stjórnskipulag sveitarfélagsins, verksvið og ábyrgð nefnda og samræma ákvæði samþykktarinnar við núverandi starfsemi og fyrirhugaða nefndaskipan.
Sveitarstjórn tekur uppfærð drög að samþykkt um stjórn Eyjafjarðarsveitar til síðari umræðu.


Fundargerðir til kynningar
19. Norðurorka - Fundargerð 328. fundar - E2611017
Lögð fram til kynningar fundargerð 328. fundar stjórnar Norðurorku.

20. Norðurorka - Fundargerð 329. fundar - E2611018
Lögð fram til kynningar fundargerð 329. fundar stjórnar Norðurorku.

21. Norðurorka - Fundargerð 330. fundar - E2611019
Lögð fram til kynningar fundargerð 330. fundar stjórnar Norðurorku.

22. Norðurorka - Fundargerð 331. fundar - E2611020
Lögð fram til kynningar fundargerð 331. fundar stjórnar Norðurorku.

23. Norðurorka - Fundargerð 332 - E2611023
Lögð fram til kynningar fundargerð 332. fundar stjórnar Norðurorku.

24. Norðurorka - Breyting á gjaldskrá vatnsveitu 2027 - E2611022
Lögð fram tilkynning frá Norðurorku hf. um breytingu á gjaldskrá vatnsveitu fyrir árið 2027.
Fram kemur að stjórn Norðurorku hafi samþykkt að gjaldskrá vatnsveitu hækki um 2,5% frá og með 1. janúar 2027, í samræmi við niðurstöðu eigenda félagsins um að gjaldskrárhækkun verði ekki umfram 2,5%.

25. Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar - fundargerð 20. - E2611030
Lögð fram til kynningar fundargerð 20. fundar svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar 2026-2030.

26. Fjallskilanefnd Eyjafjarðarsveitar - 53 - 2611008F
Lögð fram til kynningar fundargerð 53. fundar fjallskilanefndar.

27. Öldungaráð - 7 - 2611016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 7. fundar öldungaráðs.

28. Atvinnu- og umhverfisnefnd - 23 - 2610016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 23. fundar atvinnu- og umhverfisnefndar.

29. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 460 - 2611015F
Lögð fram til kynningar fundargerð 460. fundar skipulagsnefndar.

30. Velferðar- og menningarnefnd - 27 - 2611022F
Lögð fram til kynningar fundargerð 27. fundar velferðar- og menningarnefndar.


23.11.2026
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.