Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2026 var lögð fram til fyrri umræðu þann 20. nóvember. Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir 342 m.kr. rekstrarafgangi af A-hluta og 418 m.kr. afgangi af rekstri samstæðu. Gert er ráð fyrir að framhald verði á jákvæðri afkomu á komandi árum. Áframhaldandi jákvæð afkoma byggir þó á því að helstu forsendur standist, sérstaklega þróun tekna, launakostnaðar og þjónustuþarfar.
Tekjur ársins 2026 í samstæðu eru áætlaðar 2.205 m.kr. sem er hækkun um 17,3% milli ára m.v. útkomuspá 2025. Áætlað er að skatttekjur (án framlags frá Jöfnunarsjóði) verði 1.181 m.kr. Miðað er við að útsvarsprósenta verði áfram 14,97% og álagningarhlutfall fasteignaskatts íbúðarhúsnæðis, A-skattflokks, lækki um 10,3% og fari úr 0,39% í 0,35% en verði óbreytt, 1,4%, á milli ára í C-skattflokki. Áætlað er að hækka sorphirðugjöld, rotþróargjald og gjald fyrir dýraleifar um 4% til að mæta hækkandi kostnaði við úrgangsmál, en önnur gjaldskrá hækki að jafnaði um 2,5%. Leikskólagjöld munu hins vegar hækka í byrjun september í samræmi við þróun vísitölu, líkt og verið hefur. Þá verði íþrótta- og tómstundastyrkur barna hækkaður í 60.000 kr. og lýðheilsustyrkur eldri borgara hækkaður í 18.000 kr.
Áætlað er að framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verði 792 m.kr. og að aðrar rekstrartekjur verði 231 m.kr. Hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) er áætlaður 514 m.kr. árið 2026 sem samsvarar 23% af rekstrartekjum. Í sjóðstreymi er veltufé frá rekstri áætlað 406 m.kr. sem samsvarar 18% framlegð.
Fjárfestingaráætlun ársins 2026 gerir ráð fyrir heildarfjárfestingu að fjárhæð 617 m.kr. Stærsta verkefnið er áframhaldandi uppbygging á Hrafnagilsskóla og íþróttamiðstöð ásamt vinnu við gatnakerfi Hrafnagilsshverfis. Fjárfestingum verður mætt með lántöku, allt að 400 m.kr., sölu eigna og rekstrarafgangi samstæðunnar. En áætlað er að heildareignir samstæðu Eyjafjarðarsveitar standi í 3,5 ma.kr. undir lok næsta árs.
M.v. fjárhagsáætlun sem hér er lögð fram til fyrri umræðu mun skuldaviðmið Eyjafjarðarsveitar skv. reglugerð 502/2012 standa í um 19% við lok árs 2025 og í um 21% í árslok 2026 og verða vel innan lögbundinna marka.
Rétt er að vekja athygli á óvissuþætti í fjárhagsáætluninni sem tengist fyrirhugaðri sölu eigna sveitarfélagsins. Til stendur að selja Skólatröð 13 ásamt tveimur sumarhúsum sem nýttir voru við gamla leikskólann og er enn stefnt að sölu Laugalandsskóla. Tekjur af þessum sölum eru ekki tryggar fyrr en kaupsamningar hafa gengið eftir og gæti frávik í söluverði eða tímasetningu haft áhrif á fjárhagsstöðu ársins.