Heimasíða Hrafnagilsskóla liggur niðri

Fréttir

Heimasíða Hrafnagilsskóla, krummi.is, hefur legið niðri síðan um hádegi föstudaginn 20. nóvember. Ástæðan er netárás á hýsingarfyrirtækið 1984, sem hýsir síðuna.

Ekki liggur fyrir hvenær þjónusta 1984 kemst aftur í gang. Ef þessi röskun dregst mikið lengur munum við vinna að því að flytja heimasíðuna til annars hýsingaraðila. Á meðan sendum við nauðsynlegar upplýsingar frá skólanum með tölvupósti. Ef ykkur vantar eitthvað sem venjulega er að finna á heimasíðunni er velkomið að hafa samband við skólann í síma 464-8100.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum.