Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í annað sinn dagana 18.–21. júní 2026.
Nú er opið fyrir umsóknir um styrki vegna viðburða á hátíðinni. Styrkir eru á bilinu 50.000-300.000 kr.
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl nk.
Um hátíðina
Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.
Öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra, ásamt samtökunum Hinsegin Norðurland og Hinsegin hátíðinni í Hrísey standa að hátíðinni. Samstarfsaðilarnir vinna saman að undirbúningi hátíðarinnar, sem er hugsuð þannig að viðburðir fari fram á öllu svæðinu.
Verkefnið Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.
Taka þátt
Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin dagana 18.–21. júní 2026. Við hvetjum einstaklinga, félög og fyrirtæki til þess að taka þátt í þessari einstöku hátíð með því að flagga regnbogafánum og janfvel standa fyrir viðburði í tengslum við hátíðina.
Nú er opið fyrir umsóknir um styrki vegna viðburða á hátíðinni. Styrkir eru á bilinu 50.000-300.000 kr. Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl nk. Sótt er um á rafrænu umsóknarblaði sem nálgast má HÉR.
Hátíðin fagnar fjölbreytileika og eflir sýnileika LGBTQ+ samfélagsins með því að skapa opið og öruggt samfélag fyrir alla íbúa og gesti. Með viðburðum um allt Norðurland eystra gefst tækifæri til að sýna samfélagslega ábyrgð, styðja jafnrétti og fjölbreytni og tengjast nýjum hópum.
Hvernig getur þú tekið þátt?
- Haldið viðburð – t.d. tónlistaratriði, fræðsluviðburð eða skapandi uppákomu
- Boðið upp á sérstaka afslætti eða tilboð í tengslum við hátíðina
- Skreytt og lýst upp rýmið ykkar í litum hátíðarinnar
- Stutt við hátíðina með styrkjum eða samstarfi
- Flaggað fána hinseginleikans
Vertu hluti af jákvæðum samfélagslegum breytingum og sýndu þinn stuðning!Ef þú eða þitt félag/fyrirtæki hafið áhuga á að leggja fram hugmynd eða halda viðburð, þá endilega sendið okkur upplýsingar á netfangið hinseginhatid@akureyri.is þar sem kemur fram eftirfarandi:
- Titill viðburðar
- Lýsing á viðburði
- Tímasetning viðburðar
- Staðsetning viðburðar
- Senda þarf eina mynd með til að nota í kynningu viðburðar
Saman sköpum við fjölbreytta og eftirminnilega hátíð!