Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 20. ágúst 2026 að kynna fyrirliggjandi gögn vegna fyrirhugaðs deiliskipulags frístundasvæðis F6 í landi Höskuldsstaða og Jódísarstaða, í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Markmið skipulagsvinnunnar er að skapa grundvöll fyrir uppbyggingu fimm frístundalóða á sunnan- og vestanverðu svæðinu. Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði um 10.000–21.500 m² að stærð.
Gögn málsins eru aðgengileg í Skipulagsgátt undir málsnúmeri 990/2026 og á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar. Fyrirspurnir um málið má senda á sbe@sbe.is.
Ábendingar og umsagnir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 17.09.2026. Kynningartími er frá 27.08.2026 til 17.09.2026.