Hreyfidagskrá 60+ komin af stað

Fréttir

Búið er að uppfæra dagskrá 60+ aldurshópsins fyrir veturinn. Félag eldri borgara í Eyjafjarðarsveit, Ungmennafélagið Samherjar og Eyjafjarðarsveit sameinast um gerð fjölbreyttrar hreyfidagskrár fyrir aldurshópinn og lítur hún svona út í vetur:

Sundleikfimi
Mánudagar kl. 13.00 - 14.00
Föstudagar kl. 13.00 - 14.00
Þjálfari er Ragnheiður Runólfsdóttir

Styrktartímar
Föstudagar kl. 11.20 - 12.20
Þjálfari er Helga Sigfúsdóttir

Boccia
Miðvikudagar kl. 10.45 - 12.00
Föstudagar kl. 11.20 - 12.20

Ringo
Þriðjudagar kl. 11.25 - 12.30

Nánari upplýsingar á vef sveitarfélagsins á þessari slóð:
https://www.esveit.is/eyjafjardarsveit/thjonusta/malaflokkar/thjonusta-fyrir-eldri-borgara/hreyfing