Hrossasmölun og stóðréttir 2026

Fréttir

Fjallskilanefnd kom saman að undangengnum undirbúningi nefndarmanna og fór yfir og gekk frá gangnaseðlum vegna hrossasmölunar.

Heildarfjöldi hrossa sem fjallskil eru lögð á eru 667.
Heildarfjöldi dagsverka er 31.
Hrossasmölun 2026 verður 2. október og stóðréttir 3. október.

Öngulsstaðadeild 2026
Hrafnagilsdeild 2026
Saurbæjardeild 2026

 

Árið 2027 verður hrossasmölun 1. október og stóðréttir 2.október.

Fjallskilanefnd áréttar að upplýsingar um fjölda hrossa á afrétt er verulega ábótavant og þarf að bæta úr. Mikilvægt er að eigendur hrossa og/eða umráðamenn geri grein fjölda hrossa á fjalli.