Íþróttavika Evrópu 23. - 30. september

Fréttir

Íþróttavika Evrópu verður haldin 23. - 30. september n.k. samkvæmt venju. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Íbúar Evrópu koma saman í þessu verkefni undir slagorðinu #BEACTIVE.

Aðgangur að viðburðum íþróttavikunnar er án endurgjalds. Ungmennafélagið Samherjar mun bjóða upp á opnar æfingar í ýmsum íþróttagreinum auk þess sem félagasamtök og einkaaðilar munum opna sína starfsemi. Þá verður frítt í sund þessa viku.

Fjölskyldufjör verður í íþróttamiðstöðinni laugardaginn 26. september í umsjá ungmennafélagsins en þar munu fjölskyldur geta komið saman milli kl. 16 og 18 og leikið sér í ýmsum íþróttum.

Enn er hægt að koma viðburðum á dagskrá íþróttavikunnar og eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við Karl Jónsson íþrótta- og tómstundafulltrúa á netfanginu karlj@esveit.is ef þeir hafa hugmyndir sem vert væri að skoða nánar.

Dagskrá íþróttavikunnar verður birt í næstu viku.