Dagur íslenskrar tungu þann 16. nóvember 2026

Fréttir

Kæru sveitungar.

Mánudaginn 16. nóvember verður haldin hátíð í Hrafnagilsskóla í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Hátíðin hefst klukkan 13:00 í íþróttasal skólans og stendur til kl. 15:00. Nemendur flytja atriði í tali og tónum sem tengjast þemadögunum en að þessu sinni er þemað skáld.

Nemendur 7. bekkjar hefja undirbúning fyrir Stóru upplestrarkeppnina og lesa textabrot úr textum hljómsveitarinnar Sálarinnar hans Jóns míns og greina textana.

Nemendur í 10. bekk eru með veitingasölu að lokinni dagskrá. Þar verður standandi hlaðborð og verðin eru eftirfarandi:

  • 0-5 ára ókeypis
  • Nemendur í 1.-10. bekk 1.000 kr.
  • Þau sem lokið hafa grunnskóla 2.500 kr.

Nemendur 10. bekkjar verða með söluborð og taka niður pantanir í fjölbreyttan varning.
Allur ágóði rennur í ferðasjóð bekkjarins.

Hægt er að greiða með peningum og einnig er posi á staðnum.

Öll eru hjartanlega velkomin,
nemendur og starfsfólk Hrafnagilsskóla.