Kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttir

Kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir eftir framboðslistum vegna komandi sveitarstjórnarkosninga sem haldnar verða þann 16. maí 2026.

Í ár verður meðmælasöfnun framboða rafræn í fyrsta sinn í mörgum sveitarfélögum, þar með talið í Eyjafjarðarsveit. Kerfið opnar fyrir söfnun meðmælenda 3. mars. Stjórnmálasamtök sem ætla að skila inn framboðum til sveitarstjórna þurfa að stofna rafræna meðmælasöfnun með framboðinu sínu í sveitarfélaginu en góðar leiðbeiningar um það er að finna hér: https://island.is/stofna-medmaelasoefnun-vegna-frambods-til-sveitarstjornar

Athugið:

  • Á framboðslista skulu vera að lágmarki 7 frambjóðendur og að hámarki 14 frambjóðendur.
  • Hver kjósandi getur aðeins mælt með einu framboði.
  • Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs.
  • Framboðsfrestur rennur út 10. apríl kl. 12:00

Vinsamlegast athugið að viðmiðunardagur kjörskrár verður 8. apríl, kl. 12:00.

Um fjölda frambjóðenda, meðmælenda og önnur formsatriði við framlagningu lista vísast til laga um kosningu sveitarstjórna, sjá kosning.is

Ef enginn fullgildur framboðslisti berst verður kosning óbundin. Ef aðeins einn fullgildur framboðslisti berst er framboðsfrestur framlengdur um tvo sólarhringa. Komi ekki fram nýr framboðslisti innan þess tíma verður framkominn framboðslisti sjálfkjörinn.

Þau sem hafa spurningar til kjörstjórnar um fyrirkomulag framboða, meðmælasöfnun eða önnur atriði er varða kosningarnarnar geta sent fyrirspurn á netfangið esveit@esveit.is. Fyrirspurnum verður svarað eins fljótt og unnt er.

 

Kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar,

Einar G. Jóhannsson

Þór Hauksson Reykdal

Sigríður Hrefna Pálsdóttir