"Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum. Mótið fer fram 26. - 28. júní 2026 í Eyjafjarðarsveit. Komdu og vertu með!"
Nánar má lesa hér um Landsmót 50+
Fjöldi greina á Landsmóti UMFÍ 50+
"Fjöldi íþróttagreina verður á dagskrá Landsmóts UMFÍ 50+ þegar það verður í fyrsta sinn haldið á sambandssvæði UMSE í júní 2026. „Það er nóg að gera hjá okkur, við erum búin að velja stóru greinarnar og stemningin fyrir mótinu er mjög góð,“ segir Valgerður Reykjalín, sem var ráðin framkvæmdastjóri Ungmennasambands Eyjafjarðar (UMSE) í haust.
Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Hrafnagilshverfi síðustu helgina í júní á næsta ári. Þetta verður í 14. sinn sem mótið er haldið síðan það fyrsta fór fram á Hvammstanga árið 2011 og í fyrsta sinn sem það er haldið í Eyjafjarðarsveit.
Undirbúningur fyrir Landsmót UMFÍ 50+ fer vel af stað og greinilegt að í Eyjafjarðarsveit verður gott mót. Framkvæmdanefnd mótsins er nær fullskipuð og búið að teikna upp skipulag fjölbreyttra keppnisgreina.
Eins og keppnisdagskráin lítur út núna verður hægt að taka þátt í badmintoni, boccia, bridds, frjálsum íþróttum, golfi, pílu, pokavarpi, pútti, pönnukökubakstri, ringói, skák, skotfimi, stígvélakasti, sundi og hjólreiðum. Stefnt er að því að hafa opnar greinar á borð við frisbígolf, utanvegahlaup og brennibolta, auk sýningar í hestaíþróttum."