Kraftmikill íbúafundur um framtíð gamla Þinghússins

Fréttir
Um 30 manns sóttu íbúafundinn
Um 30 manns sóttu íbúafundinn

Í gærkvöldi fór fram íbúafundur í Laugarborg um framtíðarnotkun gamla Þinghússins í Hrafnagilshverfi og skipulagssvæðisins þar í kring. Rúmlega 40 manns sóttu fundinn og eftir hópavinnu á borðum komu fram fjömargar hugmyndir sem unnið verður úr næstu vikur og mánuði.

Mikill kraftur var í fundarmönnum og greinilegt að íbúum er annt um þetta svæði og framtíðar skipulag þess. 

Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri bauð fundarmenn velkomna og fór yfir forsögu málsins og tilurð fundarins. Eftir gómsæta súpu að hætti Kvenfélagsins Iðunnar tóku fulltrúar frá Landslagi ehf við stjórn fundarins og leiddu fundarmenn áfram í borðavinnu þar sem hin eiginlega hugmyndavinna fór fram. 

Hóparnir skiluðu svo af sér efni til Landslags sem mun vinna úr því og senda sveitarstjórn til áframhaldandi vinnu við skipulag svæðisins.