Krummakot óskar eftir að ráða leikskólakennara í tímabundna afleysingu, með góðum möguleika á áframhaldandi ráðningu

Fréttir

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi 10 km sunnan Akureyrar. Í skólanum eru nú 77 börn.
Einkunnarorð skólans eru „Leikur er okkar nám“
Skólasýn er: Virðing, góðvild og festa þar sem gleði og fagmennska ríkir.

Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða.
Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð og útikennslu. Allir nemendur hafa aðgang að góðri aðstöðu til hreyfingar í íþróttahúsi og fá einnig tónlistarstund með tónlistarkennara einu sinni í viku.
Nánari upplýsingar á starfsemi leikskólans má finna á heimasíðu: https://krummakot.leikskolinn.is 

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða öðru kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (B.s, B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
• Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar eru mikilvægir eiginleikar.
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
• Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Umsóknarfrestur til og með 15. mars
Frekari upplýsingar veita Erna Káradóttir eða Sigþóra Baldursdóttir í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is - sigtora@krummi.is