Laus staða heimilisfræðikennara í Hrafnagilsskóla Eyjafjarðarsveit

Fréttir

Við óskum eftir að ráða heimilisfræðikennara í 80-100% starf frá og með 1. ágúst 2026. Um er að ræða ótímabundið starf.

Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli um 12 km. fyrir innan Akureyri og eru um 180 nemendur í skólanum. Hrafnagilsskóli hefur hefur sýn sem byggir á skilningi, fagmennsku og dyggðum. Agastefna skólans er Jákvæður agi og meðal einkenna skólans er umhverfismennt, öflug list- og verkgreinakennsla ásamt nýtingu tækni til náms. Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is.

Leitað er eftir kennara sem:

  • Sýnir metnað í starfi.
  • Vinnur í góðri samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldra.
  • Er fær og lipur í samskiptum.
  • Er skapandi og sjálfstæður.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Lagar kennslu- og starfshætti markvisst að þörfum nemenda.
  • Sýnir metnað fyrir hönd nemenda.
  • Vinnur í samvinnu við kennara og annað fagfólk.
  • Sýnir árangur í starfi.
  • Sýnir hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sýnir frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hefur gott orðspor og krafa er gerð um að framkoma og athafnir á vinnustað samrýmist starfinu.

Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.

Umsóknarfrestur er til og með 6. maí 2026.