Við óskum eftir að ráða íþróttakennara í 80-100% starf frá og með 1. ágúst 2026. Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár og er íþróttakennsla u.þ.b. 60% af starfinu. Önnur kennsla getur verið eftir áhugasviði og sérmenntun viðkomandi.
Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli um 12 km. fyrir innan Akureyri og eru um 180 nemendur í skólanum. Hrafnagilsskóli hefur hefur sýn sem byggir á skilningi, fagmennsku og dyggðum. Agastefna skólans er Jákvæður agi og meðal einkenna skólans er umhverfismennt, öflug list- og verkgreinakennsla ásamt nýtingu tækni til náms. Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is.
Leitað er eftir kennara sem:
- Sýnir metnað í starfi.
- Vinnur í góðri samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldra.
- Er fær og lipur í samskiptum.
- Er skapandi og sjálfstæður.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Lagar kennslu- og starfshætti markvisst að þörfum nemenda.
- Sýnir metnað fyrir hönd nemenda.
- Vinnur í samvinnu við kennara og annað fagfólk.
- Sýnir árangur í starfi.
- Sýnir hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sýnir frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hefur gott orðspor og krafa er gerð um að framkoma og athafnir á vinnustað samrýmist starfinu.
Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2026.