Laus staða sjónlistakennara við Hrafnagilsskóla.
60-100% kennarastaða
Við Hrafnagilsskóla er laus staða sjónlistakennara frá áramótum með möguleika á ótímabundinni ráðningu. Leitað er eftir kennara í 80% starf en til greina kemur að ráða í 60-100% starf óski umsækjandi eftir því. Kennarar eru faglegir leiðtogar og sjálfstæðir í vinnubrögðum en þurfa jafnframt að vinna í teymi og í nánu samstarfi við aðra kennara. Í sjónlistum er unnið með alla miðla sjónlista þar sem hugmyndum nemenda er fundinn farvegur. Í sjónlistum, oftast myndlist, vinna nemendur út frá eigin ímyndunarafli og tengja við fyrri reynslu, menningu og umhverfi.
Ráðið er í starfið frá og með 1. janúar 2027.
Menntunar- og hæfniskröfur:
● Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
● Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum sjónlistar.
● Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
● Hæfni til að skipuleggja og undirbúa nám og kennslu.
● Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
● Framúrskarandi samskiptahæfni og metnaður til árangurs.
● Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti.
● Hæfni til að tileinka sér tækni og nýjungar.
Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.
Í öllum störfum við Hrafnagilsskóla er gerð krafa um vammleysi, þ.e. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 3. desember 2027.
- Stjórnsýsla
- Stjórnkerfi
- Skjöl og útgefið efni
- Fundargerðir
- Fjárhagsáætlun
- Ársreikningar
- Gjaldskrár
- Samþykktir
- Ábendingar
- Umsóknir
- • Íþrótta- og tómstundastyrkur
- • Lýðheilsustyrkur eldri borgara
- • Heimaþjónusta
- • Starfsumsókn
- • Leyfi til hunda- og kattahalds
- • Umsókn um leiguhúsnæði
- • Félagslegt leiguhúsnæði
- • Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning
- • Umsókn um leyfi til búfjárhalds í þéttbýli
- • Umsókn um leyfi til búfjárhalds í Eyjafjarðarsveit
- • Umsókn um akstursþjónustu
- • Umsókn um styrk til menningarmála
- • Umsókn um leyfi til að starfrækja dýrahótel/dýraathvarf í Eyjafjarðarsveit
- • Umsókn um styrk vegna varmadælu
- Umsókn um afreks- og hvatningarstyrk
- Annað útgefið efni
- Eyjafjarðarsveit
- Skipulags- og byggingarmál
- Þjónusta
- Mannlíf