Stoðkennari á yngsta stigi
Leitað er eftir kennara í 100% starf stoðkennara við Hrafnagilsskóla. Stoðkennari á yngsta stigi er sinnir námsstuðningi við nemendur, er sjálfstæður í vinnubrögðum en vinnur jafnframt í teymi á yngsta stigi og í stoðteymi skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólanám í kennarafræðum og starfsleyfi sem kennari.
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Reynsla af skipulagningu og undirbúningi náms og kennslu eða þjálfunar.
- Færni til þess að leggja mat á og greina framvindu náms/þjálfunar.
- Farsæl reynsla af teymissamstarfi auk skipulagsfærni, sveigjanleika og víðsýni.
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og metnaður til árangurs.
- Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti.
- Hæfni til að tileinka sér tækni og nýjungar.
Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.
Í öllum störfum við Hrafnagilsskóla er gerð krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2026.