Leikskólinn Krummakot opnar í nýju húsnæði

Fréttir
Starfsfólk Krummakots gleðst yfir fyrsta opna degi í nýrri byggingu
Starfsfólk Krummakots gleðst yfir fyrsta opna degi í nýrri byggingu

Kæru íbúar, upp er runninn sérlega ánægjulegur dagur sem margir hafa beðið eftir í langan tíma, leikskólinn Krummakot hefur flutt í nýtt húsnæði og hefur starfsemi sína þar í dag. Þetta er stór stund fyrir okkar sveitarfélag.

Ný aðstaða er mikil bylting fyrir starfsfólk og nemendur þar sem unnt verður að veita börnum og foreldrum enn betri þjónustu. Nýr búnaður hefur verið keyptur og nálægð og gott flæði milli deilda býður upp á aukna samvinnu innan leikskólans. Tenging yfir í grunnskóla, sem opnuð verður von bráðar, eykur að auki til muna samstarfsmöguleika milli skólastiga.

Á næstu vikum fer fram vinna við að leggja lokahönd á skólalóðina sem verður girt af í fyrstu viku september. Ný og glæsileg tæki og sandkassar munu þá verða tekin í notkun og auka á fjölbreytta flóru afþreyingar fyrir börnin og að sjálfsögðu vera opin almenning utan starfstíma skólans. Fram að því mun starfsfólk í meira mæli njóta þess frábæra svæðis með börnunum sem við höfum í næsta návígi skólans, í Aldísarlundi.

Í september á starfsemi Krummakots afmæli og verður þá opið hús fyrir áhugasama til að koma og skoða og gleðjast yfir þessum áfanga. Verður það auglýst nánar síðar.

 

Til hamingju með daginn

Finnur Yngvi Kristinsson
Sveitarstjóri