Lummuangan finnst um allan Grýtubakkahrepp laugardaginn 31. ágúst þegar Gamli bærinn Laufás og Kaffi Laufás bjóða gestum
sínum að ganga í bæinn í síðasta sinn fyrir vetrarlokun. Markaðsstemning verður í Laufási af þessu tilefni þar
sem nýuppeknar kartöflur, rófur, berjasultur og brauð ásamt handverki og fleiru forvitnilegu leika aðalhlutverkið. Kaffi Laufás býður
uppá kaffibolla með öllu meðlæti, ísinn verður á spottprís auk þess sem veglegur afsláttur verður af völdum vörum og
handverki í safnbúð. Komdu í heimsókn í stílhreinan burstabæ þar sem þú andar að þér sögu
íbúanna í hverju horni. Það er tveir fyrir einn í aðgangseyri þennan dag.
Opnunartími í Laufási til og með 31. ágúst er 9:00-17:00.
Vert að vekja áhugasama á því að nú fer hver að verða síðastur að koma í heimsókn í Skáldahúsin
á Akureyri þetta sumarið.
Síðasti opnunardagur Nonnahúss, Sigurhæða og Davíðshúss er föstudagurinn 30. ágúst kl. 13:00-17:00.
