Hafin er vinna við lokafrágang meðfram Hrafnatröð, í Hrafnagilshverfi, sem standa mun fram í miðjan júní. Búast má við óþægindum vegna framkvæmdanna sem fela óhjákvæmilega í sér þrengingar, hjáleiðir og tafir í umferðinni á þessu tímabili en gullfallegu og snyrtilegu umhverfi að framkvæmdum loknum.
Framkvæmdirnar fela í sér hitaveitulagnir og lagningu á köldu vatni, rafstrengjum og samskiptalögnum meðfram Hrafnatröð og eru því nokkrar af umfangi þennan tíma.
Framkvæmdinni næstu þrjár vikur verður skipt í tvo áfanga.
Áfangi 1 verður frá gönguþverun Hrafnatraðar við Hrafnagilsskóla að sunnan og norður fyrir syðri gatnamót Bakkatraðar. Meðan á framkvæmdum þar stendur má búast við þrengingum. Þá verður norður innkeyrsla Laugartraðar lokuð í einhverja daga meðan framkvæmdir standa yfir.
Áfangi 2 verður í beinu framhaldi og nær inn á tengiveginn við Eyjafjarðarbraut vestri. Á því tímabili verður vegurinn á því svæði lokaður almennri umferð og hjáleið þá um Bakkatröð.
Í kjölfar þessa verða stígar malbikaðir auk gatnakerfis og stíga í Hólmatröð. Þá verður lokað sári sem varða eftir við að fjarlægja gömlu Ártröðina og svæðið það grætt upp.
Þá á eftir að setja hækkanir og gönguþveranir á Hrafnatröð til móts við Bakkatröð og til móts við nýja leikskólann og verða minniháttar truflanir þegar að því kemur.

