Melgerðismelar (flugskýli), Eyjafjarðarsveit – kynning á vinnslutillögu

Fréttir

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 27.02.2026 að vísa vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi fyrir flugskýli á Melgerðismelum í kynningarferli skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vinnslutillagan tekur til nýs deiliskipulags fyrir flugskýli á Melgerðismelum, þar sem afmarkaðar eru lóðir og byggingarreitir fyrir flugskýli og kveðið á um aðkomu og helstu skilmála uppbyggingar, ásamt fyrirkomulagi veitna og fráveitu.

Vinnslutillagan er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar á opnu húsi, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, þann 11.03.2026 milli kl. 12 og 15, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is, undir málsnúmeri 1120/2025. Hægt er að skila inn athugasemdum til og með 18.03.2026 á vef Skipulagsgáttar. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is

Melgerðismelar-flugskýli-deiliskipulag-tillaga-2026-03-02.pdf

Melgerðismelar-flugskýli-deiliskipulag-tillaga-uppdráttur-2026-03-02.pdf