Félagsmiðstöðin Hyldýpi verður opin tvisvar í viku fyrir nemendur miðstigs Hrafnagilsskóla til reynslu fram að áramótum skv. ákvörðun sveitarstjórnar. Opið verður milli kl. 14 og 16 mánudaga og miðvikudaga og verður opnunum skipt á milli bekkja miðstigs. Þannig byrjar 7. bekkur mánudaginn 15. september, 6. bekkur miðvikudaginn 17. og 5. bekkur á sína fyrstu opnun mánudaginn 22. september. Starfsáætlunin verður send í tölvupósti til foreldra, en einnig mun hún hanga uppi í skólastofum miðstigs.
Markmiðið með þessum opnunum er að kenna krökkunum að taka þátt í frjálsu frístundastarfi, sinna þeirri dagskrá sem í boði er og venjast þeim reglum sem gilda í starfinu.
Þeir dreifbýliskrakkar sem þurfa að bíða eftir æfingum hjá ungmennafélaginu Samherjum geta sótt Hyldýpið þessa daga þó þeirra bekkur eigi ekki daginn. Aðra daga halda þau til í setustofu íþróttamiðstöðvarinnar eins og áður.
Umsjónarmaður Hyldýpis er Sunna Björg Valsdóttir, en henni til aðstoðar í miðstigsopnunum verður Karl Jónsson.