Mikið líf í Hrafnagilshverfi - Hvetjum íbúa til að fegra nærumhverfið og taka vel á móti gestum

Fréttir

Dagana 26.–28. júní verður líf og fjör í Eyjafjarðarsveit þegar Landsmót UMFÍ 50+ fer fram. Fjölmargir gestir munu sækja sveitarfélagið heim og sunnudaginn 28. júní mun Ungmennafélagið Samherjar fagna 30 ára afmæli sínu með viðburðum sem verða hluti af hátíðarhelginni. Verður það auglýst nánar síðar.

Það er því óhætt að segja að sveitarfélagið sé að búa sig undir annasama og skemmtilega helgi. En nú standa yfir umfangsmiklar framkvæmdir í Hrafnagilshverfi. Unnið er að malbikun gatna og gangstétta, framkvæmdir standa yfir á lóð leikskólans og áfram er unnið af krafti við viðbyggingu Hrafnagilsskóla. Þá eru verktakar og húsbyggjendur á fullu að vinna að framkvæmdum við ný hús í nýjustu götum hverfisins.

Starfsmenn Norðurorku vinna jafnframt þessa dagana að lagningu veitukerfa meðfram Hrafnatröð. Verkið hefur tafist af ýmsum ástæðum og biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar valda. Viljum við þakka íbúum fyrir sýnda þolinmæði og ekki síst íbúum í Bakkatröð þar sem umferð hefur verið beint í gegnum götuna meðan á framkvæmdunum stendur.

Þrátt fyrir miklar framkvæmdir er markmiðið skýrt; að taka vel á móti gestum og sýna sveitarfélagið frá sinni bestu hlið. Sveitarfélagið leggur sitt af mörkum til verkefnisins. Vinnuskólinn er kominn á fullt skrið við að fegra umhverfið, nýjustu „starfsmenn“ sveitarfélagsins, slátturóbótarnir, vinna ötullega á grænum svæðum og starfsfólk og verktakar kappkosta að ganga frá framkvæmdasvæðum eins vel og kostur er.

Nú leitum við einnig til ykkar og hvetjum íbúa Hrafnagilshverfis og sveitarfélagsins alls til að líta yfir garða sína, lóðir og nærumhverfi næstu daga. Með sameiginlegu átaki getum við gert hverfið enn snyrtilegra og tekið á móti gestum Landsmóts 50+ og afmælishátíðar Samherja með þeim hlýhug og metnaði sem einkennir Eyjafjarðarsveit.

Ef íbúar verða varir við eitthvað á vegum sveitarfélagsins sem betur mætti fara hvað varðar snyrtimennsku eða umhirðu er þeim velkomið að senda ábendingar á netfangið esveit@esveit.is.

Við hlökkum til að taka á móti gestum, fagna með Umf. Samherjum þessum merka áfanga og njóta saman viðburðaríkrar helgar í Eyjafjarðarsveit.