Norðurþing, 15. apríl 2026
Ályktun Ungmennaþings SSNE 2026
Ungmennaþing SSNE 2026 skorar á sveitarstjórnir og framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra að tryggja að ungmennaráð verði virkur og eðlilegur hluti af ákvarðanatöku sveitarfélaga. Ungt fólk vill taka þátt, láta í sér heyra og hafa áhrif — sérstaklega í málefnum sem snerta líf þeirra, aðstæður og framtíð. Ungmennaráð eru mikilvægur vettvangur fyrir slíka þátttöku og eiga ekki að vera til málamynda heldur raunveruleg rödd í stjórnsýslu sveitarfélaga. Ungmennaþingið leggur áherslu á að: Ungmennaráð fái skýrt hlutverk og raunverulegt umboð, ungmennaráð séu höfð með í ráðum þegar fjallað er um málefni sem varða börn og ungmenni, skýrar boðleiðir séu milli ungmennaráða, nefnda og sveitarstjórna og að tekið sé mark á tillögum og sjónarmiðum ungmennaráða, með skýrum svörum og eftirfylgni. Ungmennaþing SSNE hvetur framboð til sveitarstjórna til að gera þátttöku ungmennaráða að skýrum hluta af stefnu sinni og sýna í verki að rödd ungmenna skiptir máli. Virkt lýðræði byggir á því að ungt fólk hafi tækifæri til að hafa áhrif – ekki aðeins í framtíðinni, heldur hér og nú.