Opinn fundur með félagasamtökum í Eyjafjarðarsveit um viðburðahald

Fréttir

Eyjafjarðarsveit boðar til opins fundar með félagasamtökum í Eyjafjarðarsveit þar sem rætt verður um viðburðahald í sveitarfélaginu. Umræðuefnið verður:

  • Hvað viðburðir eru í gangi í dag?
  • Hugmyndir félaga að viðburðum og verkefnum.
  • Hvað geta félögin lagt af mörkum.
  • Samstarf, tímasetningar og leiðir.

Fulltrúar SSNE munu stýra umræðum og í lok fundar verða næstu skref ákveðin í sameiningu.

Fundurinn verður haldinn í Félagsborg, miðvikudaginn 18. nóvember kl. 19.30. Félögin eru hvött til þess að senda sína fulltrúa á fundinn og taka þátt í mótun hugmynda að eflingu viðburðahalds í sveitarfélaginu.