Búið er að taka niður póstkassana sem voru fyrir göturnar Laugartröð, Ártröð, Brekkutröð, Vallartröð, Skógartröð, Hjallatröð, Sunnutröð og Bakkatröð.
Þeir sem vilja nálgast sinn póstkassa geta sótt hann á gámasvæðið sem er opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 13-17.
Þau heimili sem eiga eftir að skrá sig fyrir póst í póstbox geta nálgast eyðublað í anddyri skrifstofu Eyjafjarðarsveitar eða sótt rafrænt eyðublað hér.