Búið er að taka niður póstkassana í Hrafnagilshverfi og geta þeir sem vilja nálgast sinn póstkassa á gámasvæðinu. Best er að fara á opnunartíma þess sem er kl. 13-17 á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Póstkassarnir eru norðanmegin á plani gámasvæðisins.
Þann 18. nóvember 2024 voru póstbox tekin í notkun fyrir Hrafnagilshverfi og eru þau staðsett við Skólatröð 11. Þar er bæði hægt að senda pakka og sækja. Skráningarbréf er hægt að nálgast í anddyri Skólatraðar 9 og á Pósthúsinu á Akureyri.
Hér má sjá fréttir um póstboxin 2024:
https://www.esveit.is/eyjafjardarsveit/frettir/postbox-i-hrafnagilshverfi
https://www.esveit.is/eyjafjardarsveit/frettir/fra-og-med-18-november-verdur-almennum-brefum-dreift-i-postbox