Rammahluti aðalskipulags - Þróun byggðar í Vaðlaheiði

Fréttir

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 26. júní 2025 breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar – Rammahluti aðalskipulags - Þróun byggðar í Vaðlaheiði.

Rammaskipulagið fjallar um þróun frístunda- og Íbúðarbyggðar á svæði sem nær til beggja sveitarfélaganna og er skipulagið sett fram sem ein heildstæð stefna sem rammahluti Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 og Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020. Stefnan verður forsenda deiliskipulagsgerðar og framkvæmda við uppbyggingu á byggðum innan skipulagssvæðis í Vaðlaheiði. Nánari upplýsingar, skilmála og áhrifamat má finna inn á vefsíðu skipulagsgáttar (skipulagsgatt.is) undir málsnúmerinu 1066/2023. Aðalskipulagsbreyting þessi hefur fengið málsmeðferð skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að auglýstri skipulagstillögu verði breytt eins og fram kemur í svörum sveitarstjórnar við athugasemdir. Svo breytt tillaga er samþykkt samhljóða skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er skipulagsfulltrúa falið að fullnusta gildistöku skipulagsins.

 

f.h. Eyjafjarðarsveitar 27. ágúst 2025.

Arnar Ólafsson

Skipu­lags- og bygg­ing­ar­full­trúi Eyja­fjarðar bs.