Ringómót eldri borgara 60+

Fréttir

Þessir brosmildu ringóspilarar tóku á dögunum þátt í sínu fyrsta móti. Eins og sést var gleðin og liðsheildin í fyrirrúmi en einnig hugað að útlitinu og hópurinn skartaði bolum með vísan í nafn liðsins, Hrafnar. Hópurinn æfir einu sinni í viku yfir vetrarmánuðina (æfingar verða eitthvað fram í júnímánuð) og allir 60+ sem hafa áhuga á að prófa eru hjartanlega velkomnir. Bara hafa samband eða kíkja í íþróttahúsið á þriðjudögum kl. 11:20!