Því miður var heldur nöturlega aðkoman eftir síðustu viku við gamla leikskólann/þinghúsið en tvær rúður höfðu verið brotnar þar. Það eru því vinsamleg tilmæli til allra sem búa í hverfinu að ræða á sínu heimili um að bera þurfi virðingu fyrir því sem er í kringum okkur, af hvaða tagi sem það er.
Ef einhver hefur upplýsingar um hver/hverjir voru að verki má láta vita af því í síma 463-0600/463-0615, í tölvupósti á esveit@esveit.is eða í gegnum Ábendingar á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
