Samúðarkveðja frá sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar

Fréttir
Hugur okkar er hjá þeim sem eiga um sárt að binda
Hugur okkar er hjá þeim sem eiga um sárt að binda

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar sendir innilegar samúðarkveðjur vegna þess hörmulega sjóslyss sem varð þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 fórst út af Austfjörðum þann 25. nóvember 2026 með þeim afleiðingum að þrír skipverjar létust.

Sveitarstjórn vottar aðstandendum hinna látnu sína dýpstu samúð og sendir þeim skipverjum sem komust lífs af, fjölskyldum þeirra og öllum þeim sem eiga um sárt að binda hlýjar kveðjur.

Jafnframt færir sveitarstjórn Landhelgisgæslunni, björgunarsveitum, sjómönnum og öðrum viðbragðsaðilum innilegar þakkir fyrir óeigingjarnt starf við afar erfiðar aðstæður. Atburður sem þessi minnir á hversu mikilvægt er að Ísland hafi öflugt viðbragð til að bregðast við slysum og náttúruhamförum um land allt. Því hvetur sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar stjórnvöld að hafa slíkt í huga við gerð fjárlaga fyrir árið 2027.

Hugur sveitarstjórnar er hjá öllum þeim sem eiga um sárt að binda á þessum erfiðu tímum.